HEILBRIGÐI
TRJÁGRÓÐURS
osp_IMG_7085
EFLA verkfræðistofa og Rannsóknarstöð skógræktar ríkisins hafa nýlega lokið við rannsóknarskýrslu vegna áhrifa jarðvegfyllinga á heilbrigði og vöxt trjágróðurs.

Markmiðið með rannsókninni, sem er unnin að frumkvæði verkfræðistofunnar EFLU í samstarfi við Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá, Félag skrúðgarðyrkjumeistara og umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar, var að kanna áhrif jarðvegsfyllinga á heilbrigði og vöxt trjágróðurs.

Rannsóknin var unnin í tveimur hlutum, þ.e. haustið 2010, þegar tré var grafið upp úr hljóðmön við Kringlumýrarbraut og mat lagt á viðarvef og rótarkerfi. Haustið 2011 voru síðan borkjarnar teknir úr trjám í sömu mön til að leggja mat á vöxt trjánna.

 

Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta að súrefni í jarðvegi hefur mikil áhrif á heilbrigði og vöxt trjágróðurs.

 

Höfundar vona að niðurstöður rannsóknarinnar verði jákvætt innlegg í faglega uppbyggingu og umhirðu trjágróðurs á Íslandi. Þolmörk aspa gagnvart jarðvegsdýpi eru nú betur þekkt en áður sem og áhrif á viðarvöxt og heilbrigði.

 

Sækja PDF útgáfu af skýrslu hér

 


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT