100 MW
Gas virkjun
í Tanzaníu
tanzania
gasturbina

100 MW Gas virkjun, Ubungo Dar es Salaam, fyrir Tanesco (Tanzanian Electric Supply Company) Tanzaníu.

 

Aðalverktaki: Jacobsen Elektro AS frá Noregi

 

Aðalhönnuðir: Power Engineers (USA og Suður Afríka)

 

Túrbinur og rafalar eru framleidd af Siemens og eru þrjár talsins hver um sig 34 MW (nominal), en hafa möguleika á stækkun með tiltölulega einföldum hætti.

 

Undirverktakar: Byggingar og jarðvinna er í höndum Caspian, málmsmíði að mestu CSI, raflagnir Bati Services. Þetta eru allt fyrirtæki mönnuð heimamönnum að mestu.

 

Fimmtudaginn 15. september fór Rúnar Friðgeirsson til Tansaníu á vegum Verkfræðstofu Suðurlands sem eftirlitsmaður og byggingarstjóri við byggingu tengivirkis og gasorkuvers. Í nóvember kom svo Kristján stóri bróðir á svæðið í sama tilgangi.

Upphaflegur samningur Jacobsen og Verkfræðistofunnar kvað á um að Rúnar sæi um eftirlit með byggingu tengivirkis og tengingu við landsnetið. Fljótlega sýndi sig að hönnun virkjunarinnar var verulega ábótavant og það féll í hlut Íslendinganna að bæta úr því. Meðal annars þurfti Rúnar nánast að endurhanna allt tengivirkið, því það kom í ljós þegar hefja átti framkvæmdir að alls ekki var pláss fyrir það sem teiknað hafði verið meðal annars vegna þess að 132 kV háspennulínur sem liggja þvers og kruss yfir svæðið hefðu þá legið ofan á tengivirkinu.

Þetta leiddi svo til síaukinnar hönnunarvinnu, af hálfu Verkfræðistofu Suðurlands. Má þar nefna allar neðanjarðarlagnir, sem ekki var einfalt vegna þess að um var að ræða háspennulagnir, stýristraums lagnir, frárennsli, eldvarnalagnir, auk allra annarra raflagna s.s. fyrir lýsingu og fæðilagna fyrir allar byggingar og mannvirki. Þessar lagnir verða allar meira og minna að hafa ákveðna lágmarksfjarlægð sín á milli og þar að auki er jarðskauta net í öllu svæðinu og gaslagnir neðanjarðar sem ekki var vituð nákvæm staðsetning á sem og 220 kV háspennujarðstrengur. Á meðan á jarðvinnuframkvæmdum stóð voru um það bil fjögur hundruð manns frá fjórum mismunandi verktökum að störfum og allir þurftu (vildu) hafa óheftan aðgang hvarvetna.

Í pakka aðalhönnuðar vantaði auk þess nánast allar sérteikningar sem og teikningar um yfirborðsfrágang og dren. Núna hafa verið gefnar út á annað hundrað teikningar og fer enn fjölgandi. Vegna þess að hönnun af hálfu aðalhönnuðar var í ýmsu ábótavant og á svæðinu vinna allmargir sem skoðun hafa á málinu, er enn eftir töluverð vinna við að uppfæra teikningar í lokahorf. Það hefur fallið í okkar hlut að uppfæra allar teikningar. Hluta af þeirri vinnu er hægt að vinna á Íslandi, en alltaf er betra að vera á staðnum, geta labbað út og slegið máli á það sem lýsa skal.

Í nóvember tók Verkfræðistofa Suðurlands yfir hluta byggingastjórnar raforkuversins og að öllu leiti í febrúar. Þegar við bættist svo að gera allar "as built" teikningar er ljóst að í mörg horn er að líta.

Nú styttist í að við fáum að sjá „first smoke" frá gastúrbínu númer tvö hér í Ubungo. First smoke er það kallað þegar túrbínan er gangsett í fyrsta skipti. Áður en það verður, þarf að hleypa gasinu á lagnirnar, en það krefst alls kyns formlegheita og skírteina sem kveða á um að allt sé tilbúið og í lagi. Það sem fylgir með er að eftir að gas hefur verið sett í pípurnar, þá þrengist um allar athafnir í nágrenninu. Það má til dæmis ekki nota borvélar nálægt gaspípunum, vegna þess að það neistar af kolunum í þeim. Þá þarf einnig að vera búið að malbika allt sem malbika svo eitthvað sé nefnt.

Þann 18. maí n.k. rennur starfssamningur okkar við Jacobsen Elektro AS út. Rúnar hefur verið hér frá 15. september, en Kristján frá 20. nóvember. Á þessum tíma hefur margt tekið breytingum og fer að hylla undir lok framkvæmda. Nú er jarðvinna öll að baki fyrir utan grassáningu og annan yfirborðsfrágang. Búið er að steypa yfirborð alls innra svæðis virkjunarinnar og malbikun er í gangi. Frágangsvinna við byggingar er hafin, en enn eru þó eftir allnokkrar innansleikjur, en þeir sem til þekkja vita að frágangsvinnan getur verið tímafrek. Eftirlit af hálfu verkkaupa er í höndum Þjóðverja og það eru nokkur atriði sem enn þarf að bæta úr.

Í Tanzaníu búa um 42 milljónir manna, þar af um 6 milljónir í Dar es Salaam. Þrátt fyrir þennan fjölda er opinber heildar raforkuframleiðsla landsins aðeins um 750 MW sem er heldur minna en Kárahnjúkavirkjun ein skilar. Þessi 100 MW sem nú bætast við eru því veruleg aukning. Auk þess á Jacobsen Electro AS sem hefur þá bræður á leigu eru nú í samningaviðræðum um byggingu á annarri virkjun sem verður um 150 MW drifin af hvort sem er jarðgasi eða þotueldsneyti.

Þó að það er vissulega betra að geta lokið öllu hér úti áður en haldið er heim, þá verður gott að komast aftur á Suðurland, þó ekki væri nema í nokkra daga.

 


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT