Hlutverk Iðnaðarsviðs EFLU er að veita ráðgjöf, hönnun og þjónustu í iðnaði, stóriðju og rafkerfum. Iðnaðarsviðið skiptist upp í eftirtalda kjarna sem um leið sýna áherslur okkar og sérsvið: Áliðnaður, matvælaiðnaður, efnaiðnaður, hússtjórnarkerfi, rafkerfi og sérkerfi

Kjarnasviðið hefur yfir að ráða fjölda sérfræðinga í iðnaðarferlum og mikla sérstöðu þegar kemur að raf- og stýrikerfum fyrir stóriðju, verksmiðjur, veitur og að loftræstingu og hússtjórnarkerfum. Þekking okkar á sviði rafstýrikerfa og sjálfvirkni er umfangsmikil og hún heimilar okkur yfirsýn og skilning á virkni vinnsluferla. Við komum því að verkefnunum á mótunar- og þróunarstigi. Við kappkostum enn fremur að samþætta þekkinguna mikilli reynslu meðal starfsfólks þeirra sem við vinnum fyrir og viljum efna til samstarfs með hag viðskiptavina í huga. Við sækjumst eftir samfellu í viðskiptum okkar við þá, hvort sem um viðhaldsverkefni, nýjungar eða stórframkvæmdir er að ræða, og gerum gjarnan þjónustu- og viðhaldssamninga.

Sviðið býr yfir afar mikilli sérþekkingu á rafkerfum, lýsingartækni, sérkerfum, svo sem aðgangs- og öryggiskerfum, og hússtjórnarkerfum fyrir stórar og smáar byggingar. Sviðinu er mjög til tekna að við tökum að okkur verkþætti frá mótunarskeiði, þar til kerfi er gangsett hjá notandanum.

Verkefni okkar segja sína sögu en við höfum unnið fyrir stóriðjufyrirtæki á Íslandi, álver á heimsmarkaði, mjólkuriðnað, fiskvinnslur og skip, rækjuverksmiðjur, fiskimjöls- og lýsisiðnað, fóðuriðnað, virkjanir og veitur og eigendur fjölda bygginga.

Markaðssviðstjóri
Brynjar Bragason
Sími 412 6058, tölvupóstfang: brynjar.bragason@efla.is


Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi