Byggingamarkaður samtímans kallar á hagkvæmar lausnir í víðum skilningi. Um það bil 50 verk- og tæknifræðingar á nýbyggingasviði EFLU veita öfluga og víðtæka ráðgjöf á flestum sviðum verkfræðiráðgjafar fyrir nýbyggingar. Má nefna burðarvirki, lagnir, utanhússfrágang, loftræstingu, rafkerfi, lýsingartækni, brunaráðgjöf og hljóðvistarráðgjöf.

Sérstaða okkar felst m.a. í mikilli breidd og getu til óhefðbundinna lausna. Burðarvirkjaverkefni spanna allt frá leikmyndum fyrir kvikmyndir og sýningar yfir í stærstu og flóknustu byggingar þar sem flestar gerðir nútíma burðarkerfa koma fyrir eins og í Smáralind. Lagna-og loftræstiverkefnin ná allt frá smæstu breytingaverkum til stórra og flókinna frárennslis-, hreinlætis-, hita-, loftræsti-, kæli- og úðakerfa.
Rafkerfa- og lýsingarverkefnin taka til smæstu breytingarverka upp í stórar tæknivæddar byggingar. Verkefni á bruna- og öryggissviði spanna allt frá einföldum úttektum á brunavörnum til brunahönnunar stórbygginga á borð við Smáralind og áhættugreiningar starfsemi eins og staðarval olíubirgðastöðvar fyrir höfuðborgarsvæðið. Hljóðvistarverkefnin eru viðamikil, allt frá mælingum og ráðgjöf við flugvelli, hafnarsvæði og umferðamannvirki til ráðgjafar sem miðar að góðum hljómgæðum og/eða hljóðburði í byggingum.

EFLA hefur sýnt frumkvæði í að taka upp nýjar aðferðir í byggingariðnaði og í mörgum tilvikum staðið að fortilraunum til að þróa aðferðir og sannreyna ágæti þeirra. Víðtæk reynsla EFLU af alhliða viðhaldsráðgjöf og af endurgerð gamalla húsa hefur fært sérfræðingahópnum afar verðmæta reynslu sem nýtist til að auka gæði ráðgjafar okkar.

Markaðssviðsstjóri
Arinbjörn Friðriksson
Símar 412 6031, tölvupóstfang: arinbjorn.fridriksson@efla.is


Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi