Orka og veitur
Markaðsvið EFLU sem snýr að orku og veitum tekur til ráðgjafar í orkumálum er varðar framleiðslu og dreifingu rafmagns og gagnaveitna ásamt veitum ýmis konar. Fjögur dótturfyrirtæki, eitt í Frakklandi (Hecla), en hin í Póllandi (Ispol), Tyrklandi (Turkison) og Noregi (Linuhönnun) heyra undir starfsemi sviðis og öll veita þau þjónustu innan orkugeirans hvert í sínu landi. Auk þess vinnur sviðið náið með dótturfyrirtækinu Addison í Rússlandi.
Starfsmenn eru rúmlega 30 hér heima og um 40 í dótturfyrirtækjum erlendis. Þeir hafa unnið verkefni í rúmlega 30 þjóðlöndum.
Sérstaða sviðsins felst í vinnu að mjög fjölbreyttum verkfræðilegum verkefnum í orkumálum og veitum, en um leið nýtum við okkur þjónustu annara sviða svo sem í umhverfismálum, jarðtæknimálum, mælingum, hönnun virkjana og svo framvegis. Reynsla af hönnun, forritun og uppsetningu tölvukerfa fyrir gagnasöfnun og gagnaúrvinnslu er einnig mikil og getur EFLA því boðið fram öfluga þjónustu á sviði upplýsingatækni.
Markaðssviðsstjóri
Árni Björn Jónasson
Sími 412 6036, tölvupóstfang: arni.bjorn.jonasson@efla.is