Burðarvirki
EFLA hefur veitt burðarþolsráðgjöf frá 1983 og þá alhliða þjónustu á því sviði, þ.e. forhönnun og valkostagreiningu, deilihönnun, útboðsgagnagerð og kostnaðaráætlanagerð. Ódýrasta burðarkerfið þarf ekki endilega að vera það hagkvæmasta. Ákveðin verðmæti felast í útliti bygginga, innri gerð og sveigjanleika í notkun. Kostnaður við burðarkerfi er aðeins einn liður í virði hvers mannvirkis.
Á kjarnasviði EFLU sem fæst við burðarvirki lítum við á hvert verkefni sem sérstakt og tökum á því með frjóu ímyndunarafli við val á lausnum, þar sem þarfir verkkaupa og arkitekta, gæði og hagkvæmni eru höfð að leiðarljósi, hvort sem er við nýbyggingar eða viðamiklar breytingar vegna nýrra þarfa eða hlutverks. Starfsmenn fyrirtækisins beita ávallt nýjustu tækni við hönnun burðarvirkja og fylgjast vel með öllum nýjungum með því að taka þátt í námskeiðum og ráðstefnum.
Reyndir starfsmenn sviðsins hafa verið leiðandi með nýjar og oft óhefðbundnar leiðir við hönnun burðarvirkja. Þar má nefna notkun á eftirspennu í húsbyggingar, samverkandi stál/steypu og fleira; allt til að ná fram óskum verkkaupa og arkitekta um hagkvæmni, útlit, löng höf, byggingarhraða og sveigjanleika til síðari breytinga.
Víða á Íslandi má búast við hörðum jarðskjálftum. Greining og hönnun mannvirkja, svo þau standist jarðskjálftaálag, hefur þróast hratt sl. 20 ár. Starfsmenn okkar búa yfir þekkingu og reynslu í jarðskjálftahönnun og fylgjast vel með þróun fræðanna. Þeir nýta einnig nýjasta og besta hugbúnað sem völ er á til að greina og hanna mannvirki gagnvart jarðskjálftaálagi, bæði nýbyggingar sem og núverandi mannvirki.
Sviðsstjóri
Eysteinn Einarsson.
Sími 412 6079, tölvupóstfang: eysteinn.einarsson@efla.is