Lagnir og loftræstikerfi

Verkefni sérfræðinga EFLU á kjarnasviði lagna og loftræstikerfa spanna fjölbreytt og krefjandi landslag lagnahönnunar enda sérþekking þeirra yfirgripsmikil. Við val á lagnakerfum er ávallt leitast við að langtímarekstur kosti sem minnst þó kröfur um nýtni og endingu séu í háum gæðaflokki.

Kjarnasviðið býður fram sérhannaðar hitalagnir hvort sem er í byggingum, á lóðum húsa, bílastæðum eða umferðaræðum en einnig hönnun iðnaðar-, neyslu- eða kælivatnslagna og frystikerfa. Auknar kröfur eru gerðar til endingar loftræstikerfa og til loftgæða og við höfum á að skipa færum sérfræðingum til að hanna kerfin og vinna verkáætlanir fyrir þau. Sama gildir um gerð eldvarnar-, vatnsúðunar- og vökvunarkerfa þar sem stuðst er við nýjustu tækni, vandaða staðla og háþróuð forrit, t.a.m. við útreikninga sólarhringsálags.

Samstarf við önnur kjarnasvið EFLU hefur hefur skilað þeirri sérstöðu sem við höfum við tæknilegar úrlausnir. Lagna- og loftræstihönnun er að hluta unnin með sérstökum módelútreikningum hjá hljóðvistarsviði til að tryggja vistvænar og þægilegar byggingar en nánasta umhverfi þeirra er einnig gert sem vistvænast í samvinnu við umhverfissvið. Eldvarnarkerfin byggja á langri reynslu og þekkingu EFLU á bruna- og öryggismálum. Samstarfið skilar hagkvæmustu lausnum við gerð ýmissa hluta mannvirkja, s.s. uppbyggingu gólfa, lagnastokka, veggja og gólfa.

Sviðstjóri
Rúnar H. Steinsen.
Sími 412 6181, tölvupóstfang: runar.h.steinsson@efla.is.

Fréttir

24.03.09
Kaldir karlar og konur

Starfsfólki EFLU virðist ekki veita af kælingu af og til, auk þess að stæla líkama og sál, ef marka má þátttakendur í fyrsta sjósundi EFLU fyrir skömmu. Milli 35 og 40 manns tóku dýfur í öldum Fossvogs (við ylströndina í Nauthólsvík)(+) nánar
 

Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi