Rafkerfi og lýsingartækni
Kjarnasvið rafkerfa EFLU er sérhæft í hönnun rafkerfa þ.e. lágspennukerfa, smáspennukerfa og annara sérkerfa, ásamt lýsingarhönnun.
Markmið okkar er að þjóna viðskiptavinum með þeim hætti að báðum aðilum reynist samstarfið árangursríkt og að viðskiptavinurinn meti lausnir þannig að hann leiti til okkar aftur. Þjónustan spannar fjölmörg svið, svo sem almenna raflagnahönnun (dreifikerfi, töflur ofl.), hönnun gagnaflutningskerfa fyrir tölvur/síma, hönnun lýsingarkerfa í allar gerðir mannvirkja, ljósastýrikerfa, öryggis- og aðvörunarkerfa, stjórnkerfa fyrir vatns-, hita- og loftræsikerfi og hönnun hljóð- og myndkerfa í fyrirlestrar- og fundar- og ráðstefnusali. Við vinnum verklýsingar, kostnaðaráætlanir og magntölur fyrir útboð.
Við veitum ráðgjöf um ástand rafkerfa í mannvirkjum. Við greiningu notum við sérhæfð mælitæki og sírita, og gerum tillögur til úrbóta. Eins er veitt ráðgjöf og þjónusta vegna orkukaupa og orkusparnaðar.
Í tæknivæddum heimi er krafist víðtækrar þekkingar á mörgum og óskyldum verkþáttum raf- og sérkerfa. Til að mæta þessum kröfum eru starfsmenn okkar með góða almenna þekkingu og reynslu á rafmagnssviði, en jafnframt hafa þeir aflað sér sérmenntunar og sérhæfingar á einstökum sviðum. Það veitir svigrúm til að ráðast í öll verkefni sem vænta má að komi fyrir í nútíma tæknivæddu mannvirki.
Reynsla Rafkerfasviðs kemur vel í ljós við skoðun verkefnalista undanfarinna ára. Við höfum hannað svæðis- og skrautlýsingar og sérhæfða lýsingu á byggingar sem spanna allt frá söfnum til kirkna. Rafkerfahönnunin nær til flestra gerða bygginga, skipa og annara samgöngutækja, hafna- og gámasvæða, jarðganga, gatna, torga, vega og útivistarsvæða.
Sviðsstjóri
Davíð Eysteinn Sölvason
Sími 520 9901, tölvupóstfang: david.eysteinn.solvason@efla.is