Hljóðvist
Hlutverk og þjónusta hljóðvistarsviðs Eflu er víðtæk. Sviðið kemur að margvíslegri hönnun er varðar hljóðvist og hávaða, almennri ráðgjöf, mælingum sem og endurbótum. Hljóðvistarsvið Eflu hefur undanfarin ár aflað sér verulegrar þekkingar og reynslu og verið í fremstu röð ráðgjafar á því sviði síðustu ár. Sviðið er búið hágæða hugbúnaði til útreikninga á hljómgæðum rýma, hávaða ýmiskonar hvort sem er innan- eða utandyra, hljóðísogseiginleikum samsettra efnisflata og hljóðeinangrun ýmissa vegg- og gólfuppbygginga. Sá hugbúnaður sem hljóðvistarsvið Eflu notar til hljómburðarhönnunar nýtist m.a. til að fá nákvæmar upplýsingar um ómtíma rýma, skýrleika og talskilningsstuðul (STI – e. Speech Transmission Index) rýma myndrænt, auk þess sem unnt er að hlusta á hljóðbrot sem lýsir hljómburði rýma með hlustun í heyrnartólum. Einnig hefur hljóðvistarsvið Eflu fullkomin hljóðmælitæki frá Norsonic sem nota má til hljóðmælinga innan- og utanhúss, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma.
Mikilvægt er að hljóðráðgjafar séu hafðir með í hönnunarferli nýbygginga sem og við deiluskipulagsgerð fyrir stærri og minni svæði vegna fjölda viðfangsefna sem tengjast hljóði með beinum eða óbeinum hætti og nauðsynlegt er að taka tillit til við hönnun.
Hljóðhönnun bygginga felur í sér ráðgjöf vegna hljóðeinangrunar milli rýma sem og hönnun á hljóðvist rýmis. Mikilvægt er að dempa hljóðstig frá tæknibúnaði, t.d. frá lögnum og loftræsibúnaði.
Þegar kemur að nýhönnun bygginga er gjarnan nákvæmt hljómburðarlíkan útbúið og út frá því er mögulegt að vega og meta hljóðvist tiltekinna rýma. Með þessum hætti er hægt að hljóðhanna rými með tilliti til notkunar og þar af leiðandi fá nákvæma mynd af hljóðeiginleikum fullhannaðs rýmis. Slík líkön eru nýtt við hljómburðarhönnun margvíslegra húsnæða, t.d. skólahúsnæða, íþróttahúsa, skrifstofuhúsnæða, verkstæða, fyrirlestrarsala, sameigna í fjölbýlishúsum og í auknum mæli einbýlishúsa. Líkanið nýtist einnig við útreikninga á hávaðaútbreiðslu í rýminu, t.d. frá loftræsibúnaði. Mikilvægt er að hljóðvist rýmis henti notkun þess og skal tekið tillit til þess við hljóðhönnun rýma. Jafnframt er mikilvægt að hljóðeinangrun sé fullnægjandi og hljóðstig frá tæknibúnaði s.s. lyftu, loftræsikerfi og lögnum sé innan tilskilinna marka.
Hljóðráðgjöf Eflu felst einnig í endurbótum á eldri byggingum og svæðum þar sem hljóðvist er ekki talin nægilega góð eða kortleggja þarf hávaða. Þá eru mælingar ósjaldan framkvæmdar til að nálgast nákvæmar upplýsingar um núverandi eiginleika rýmis eða svæðis. Ef viðfangsefnið er hljóðvist rýmis eða hávaðaútbreiðsla utandyra eru mæliniðurstöðurnar notaðar samhliða líkangerð og út frá niðurstöðum líkans eru lausnir lagðar til sem henta hverju sinni.
Hljóðvistarráðgjöf utandyra felur oft í sér kortlagningu hávaða frá hávaðauppsprettum og ef með þarf er leitað lausna til að draga úr þeim hávaða, þá gjarnan með mótvægisaðgerðum eða jafnvel skipulagsbreytingum. Samvinna við arkitekta og sveitarfélög er náin við gerð skipulagstillagna til að tryggja sem besta hljóðvist. Hávaði utandyra getur verið margvíslegur og hafa hljóðráðgjafar Eflu m.a. unnið að kortlagningu og hljóðmælingum á flughávaða, umferðarhávaða, hávaða frá aksturs- og skotæfingasvæðum, hafnarstarfsemi, framleiðslufyrirtækjum, þakblásurum og fleira.
Hljóðmælingar eru framkvæmdar ýmist innan- eða utanhúss og eru þær afar mikilvægar þegar skera þarf úr um hvort ákvæði byggingarreglugerðar/hávaðareglugerðar eru uppfyllt hvort sem um ræðir hávaði utanhúss eða hljóðvist innanhúss. Í kjölfar mælinga er gjarnan komið með tillögur að endurbótum ef við á.
Sviðstjóri
Ólafur Daníelsson
Sími 412 6168 , tölvupóstfang: olafur.danielsson@efla.is