Tækniteiknun
Tækniteiknun er eitt af kjarnasviðum EFLU og sinnir það verkefnum fyrir flest öll önnur kjarnasvið fyrirtækisins. Þar starfar rúmur tugur tækniteiknara.
Tækniteiknarar vinna sérhæfð teiknistörf og annast frágang og faglega umsjón með teikningum og tilheyrandi gögnum með hliðsjón af gæðastöðlum. Í störfum þeirra felst einnig kerfisstjórnun teiknikerfa, framsetning og kynning gagna, og stjórnun skjalavistunar auk ýmissa skipulagsstarfa og sérhæfðra skrifstofustarfa. Í sem stystu máli er tækniteiknari tengiliður milli hönnuða (meðal arkitekta, iðnhönnuða, verk-og tæknifræðinga og á tæknistofum borgar og sveitarfélaga) og iðnaðarmanna - gildir einu hve stórt verkefnið er eða flókið.
EFLA starfrækir sérstakt kjarnasvið sem sinnir hverskonar teiknivinnu innan fyrirtækisins, frá brúarmannvirkjum og byggingum til vatnsaflsvirkjana og álvera. Sviðið fylgist vel með þróun teikniforrita og notar ávallt nýjustu aðferðir við tækniteiknun.
Ekkert verkefni er of lítið eða stórt fyrir okkur.
Sviðstjóri
Hildur I. Sölvadóttir
Sími 412 6113, tölvupóstfang: hildur.i.solvadottir@efla.is