Rafkerfi

Kjarnasvið rafkerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir hjá EFLU er sérhæft í hönnun rafkerfa þ.e. lágspennukerfa, smáspennukerfa og sérkerfa, ásamt hvers kyns lýsingu.

Markmið okkar er að þjóna viðskiptavinum með þeim hætti að báðum aðilum reynist samstarfið árangursríkt og að viðskiptavinurinn meti lausnirnar á þannig að hann leiti til okkar aftur. Þjónustan spannar fjölmörg svið, svo sem almenna raflagnahönnun (dreifikerfi, töflur ofl.), hönnun gagnaflutningskerfa fyrir tölvur/síma, hönnun alls konar lýsingarkerfa í allar gerðir mannvirkja, ljósastýrikerfa, öryggis- og aðvörunarkerfa, stjórnkerfa fyrir vatns-, hita- og loftræsikerfi og hönnun hljóð- og myndkerfa í fyrirlestrar- og fundarsali, auk lagna fyrir vaktkerfi. Við vinnum líka verklýsingar kostnaðaráætlanir og magntölur fyrir útboð.

Í tæknivæddum heimi er krafist víðtækrar þekkingar á mörgum og óskyldum verkþáttum raf- og sérkerfa. Til að mæta þessum kröfum eru starfsmenn okkar með góða almenna þekkingu og reynslu á rafmagnssviði, en jafnframt hafa þeir aflað sér sérmenntunar og sérhæfingar á einstökum sviðum sem veitir svigrúm til að ráðast í öll verkefni sem vænta má að komi fyrir í nútíma tæknivæddu mannvirki.

Reynsla Rafkerfasviðs kemur vel í ljós við skoðun verkefnalista undanfarinna ára. Við höfum hannað svæðis- og skrautlýsingar og sérhæfða lýsingu á byggingar sem spanna allt frá söfnum til kirkna. Rafkerfahönnunin nær yfir flestar gerðir bygginga, skip og önnur samgöngutæki, hafna- og gámasvæði, jarðgöng, götur, torg, vegi og útivistarsvæði.

Sviðsstjóri
Davíð Eysteinn Sölvason
Sími 520 9901, tölvupóstfang: david.eysteinn.solvason@efla.is


Fréttir

24.03.09
Kaldir karlar og konur

Starfsfólki EFLU virðist ekki veita af kælingu af og til, auk þess að stæla líkama og sál, ef marka má þátttakendur í fyrsta sjósundi EFLU fyrir skömmu. Milli 35 og 40 manns tóku dýfur í öldum Fossvogs (við ylströndina í Nauthólsvík)(+) nánar
 

Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi