Orkumálaráðgjöf og gagnavinnsla
Orkuvinnsla og orkudreifing eru margþætt verkefni. Á sviði ráðgjafar í orkumálum hefur EFLA komið upp traustum hópi sérfræðinga sem hefur nú þegar unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir Orkustofnun, Iðnaðarráðuneytið, rafveitur, raforkuvinnslufyrirtæki og orkukaupendur.
Sérfræðingar Orkumálasviðs hafa unnið fyrir Orkuspárnefnd að gerð orkuspáa, þ.e. raforkuspár, eldsneytisspár og jarðvarmaspár en líka safnað gögnum um orkunotkun og unnið úr þeim. Við höfum einnig unnið að skipulagi raforkukerfisins hér á landi og athugunum á gjaldskrám og viðskiptum með raforku.
Meðal sértækra verkefna sviðsins eru ráðgjöf til fyrirtækja um orkunotkun og hagkvæma orkunýtingu og uppsetning á kerfi til skráningar rekstrartruflana hjá rafveitum. Í framhaldi af því hafa verið gerðar ýmsar athuganir varðandi rekstartruflanir í raforkukerfinu og auk þess sér kjarnasviðið um heimasíðu START-hópsins sem lýtur að slíkum rekstrartruflunum. Margra ára reynsla skilar sér með þessum hætti og hvetur til margþættrar vinnu við ný verkefni.
EFLA hefur aflað sér viðamikillar reynslu af hönnun, forritun og uppsetningu tölvukerfa fyrir gagnasöfnun og gagnaúrvinnslu. Sama gildir um notkun og rekstur Oracle gagnagrunna og hafa slíkir grunnar verið reknir í um tvo áratugi. Við leggjum áherslu á að þekking sérfræðinga okkar dugi til lausna á mjög fjölbreyttum verkefnum eins og starfsferillinn ber með sér en meðal verkefna á hugbúnaðarsviði eru: Gagnagrunnskerfi, vöruhús gagna og upplýsingatengingar, gagnagrunnur Orkuspárnefndar, safnkortakerfi og greiðslukortakerfi Olíufélagsins, sjálfvirk birgða- og uppgjörskerfi fyrir olíubirgðastöðvar, kerfi til skráningar rekstrartruflana í raforkukerfinu og loks skipatölvukerfi Hafrannsóknastofnunarinnar.
Sviðið hefur kappkostað að vera í fremstu röð þegar kemur að aðlögun nýjunga og hefur m.a. verið lögð áhersla á notkun vöruhúss gagna og vorum við einna fyrst hér á landi til að benda á hagnýtingu slíkrar tækni. Héldu starfsmenn nokkur námskeið hjá Endurmenntunarstofnun HÍ um það efni.
Sviðsstjóri
Jón Vilhjálmsson
Sími 412 6139, tölvupóstfang: jon.vilhjalmsson@efla.is