Raforkumannvirki

Kjarnasvið raforkumannvirkja hjá EFLU býr yfir þekkingu og reynslu til að takast á við alla þætti mannvirkja til raforkuflutnings og sinna þannig síaukinni þörf fyrir áreiðanlega rafmagnsafhendingu. Við leggjum fram jafnt einfaldar lausnir sem tæknilega ögrandi á heimsvísu. Verkefnin spanna öll stig, þ.e. frá frumhugmynd að fullgerðu mannvirki sem þarf að viðhalda og loks fjarlægja eftir að líftímanum lýkur. Sérfræðikunnáttan og reynslan er m.a. tengd leiðarvali og umhverfismati háspennulína, hönnun mastra og undirstaða og hönnun allra eininga í loftlínum, jarðstrengja og tengivirkja. Að auki tökum við að okkur verkefnistjórn, gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana, útboða og samninga, eftirlit með framleiðslu og framkvæmd, greiningu bilana/brota, ástandsúttektir og greiningu á viðhaldsþörf. Vanti jarðfræðimat fyrir jarðstrengi eða mat á sýnileika raforkumannvirkja, er sviðið til reiðu.
Sérstaða Raforkumannvirkjasviðs felst í yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af hönnun við fjölbreyttar aðstæður þar sem notaðar eru staðlaðar jafnt sem sérsniðnar lausnir. Það hefur reynslan af verkefnum í mörgum löndum og mannvirkjum á krefjandi landsvæðum verið notadrjúg.
EFLA hefur unnið að undirbúningi, hönnun og eftirliti raforkumannvirkja í 30 löndum. Heimamarkaðurinn er kjölfesta í starfseminni og fyrirtækið hefur tengst verkfræðivinnu við allar innlendar háspennulínur (66 kV spennu og þar yfir) frá 1979. Samfara hönnun hafa verið þróuð hönnunarforrit í samvinnu við LHtækni ehf. ICEtow forritið er notað til að staursetja og sýna möstur í landslagi. Það er einnig notað af erlendum fyrirtækjum. Forritið MODEST nýtist til að besta stálmöstur. Einnig hafa verið þróuð ýmis önnur forrit til nota við hönnun raforkumannvirkja.

Sviðsstjóri
Egill Þorsteins
Sími 412 6067, tölvupóstfang: egill.thorsteins@efla.is

Fréttir

24.03.09
Kaldir karlar og konur

Starfsfólki EFLU virðist ekki veita af kælingu af og til, auk þess að stæla líkama og sál, ef marka má þátttakendur í fyrsta sjósundi EFLU fyrir skömmu. Milli 35 og 40 manns tóku dýfur í öldum Fossvogs (við ylströndina í Nauthólsvík)(+) nánar
 

Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi