Vatnsaflsvirkjanir

Vatnsaflsvirkjanir

EFLA vinnur að undirbúningi, hönnun og eftirliti vegna vatnsaflsvirkjana á sérstöku kjarnasviði. Fyrirtækið vinnur einnig að viðhaldi og viðgerðum á stöðvarhúsum, steyptum stíflum sem og öðrum mannvirkjum, tengdum vatnsaflsvirkjunum.

Starfsmenn sviðsins hafa meira en tveggja áratuga reynslu af viðhaldi, hönnun og eftirliti sem og byggingu vatnsaflsvirkjana, allt frá Sogsvirkjunum (viðhald og viðgerðir) til Búðarhálsvirkjunar (hönnun) og Kárahnjúkavirkjunar (verkeftirlit).

Nokkur dæmi um verkefni okkar á nýhafinni öld bera glöggt vitni um reynslu og sérþekkingu sviðsins. Árið 2001 vann fyrirtækið ásamt samstarfsaðilum samkeppni um útboðshönnun 100 MW Búðarhálsvirkjunar. Nú er unnið að endurskoðun á þessari útboðshönnun og stefnt er að upphafi verklegra framkvæmda 2009. Árið 2003 vorum við, ásamt innlendum og erlendum samstarfsaðilum, hlutskarpastir í samkeppni um eftirlit með byggingu 50 km langra ganga og þriggja stífla, allt að 200 m á hæð, vegna Kárahnjúkavirkjunar. Við tókum einnig þátt í að hanna steypt mannvirki Kárahnjúkastíflu. Árið 2006 unnum við samkeppni, ásamt Verkfræðistofu Austurlands, um eftirlit með framkvæmdum við Ufsarstíflu og Hraunaveitu. Á árunum 2005 til 2008 sá fyrirtækið um eftirlit á framkvæmdum við stækkun Lagarfossvirkjunar. Fyrirtækið hannaði stíflu og yfirfall Djúpadalsárvirkjunar 2.

Sviðsstjóri
Eysteinn Einarsson
Sími  412 6079, tölvupóstfang: eysteinn.einarsson@efla.is



Fréttir

24.03.09
Kaldir karlar og konur

Starfsfólki EFLU virðist ekki veita af kælingu af og til, auk þess að stæla líkama og sál, ef marka má þátttakendur í fyrsta sjósundi EFLU fyrir skömmu. Milli 35 og 40 manns tóku dýfur í öldum Fossvogs (við ylströndina í Nauthólsvík)(+) nánar
 

Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi