Þjónusta

EFLA rekur öfluga ráðgjafarstarfsemi á sviði brunahönnunar og áhættugreininga og öryggismála. Faglegur metnaður sem felur í sér vandaðar greiningar og heildarlausnir einkennir störf okkar. Lögð er megináhersla á að nýta sérfræðiþekkingu og sérhæfðan hugbúnað til úrbóta. Þannig kemur færni, reynsla og þekking starfsmanna sviðsins viðskiptavinum okkar í fremstu röð.

Verkefni bruna- og öryggissviðs eru fjölbreytt og spanna öll helstu svið brunamála og öryggismála, allt frá einföldum úttektum til hönnunar stórbygginga. Bruna- og öryggissviðið starfar náið með öðrum kjarnasviðum EFLU og nýtur stuðnings af öflugri sérfræðiþekkingu á öllum sviðum húsbyggingatækni, umhverfismála ofl.

EFLA hefur yfir 30 ára reynslu í brunahönnun og öryggismálum. Fyrirtækið hefur séð um gerð eldvarnareftirlitskerfa fyrir ýmis konar starfsemi og séð um gerð rýmingar- og viðbragðsáætlana. Til að tryggja virkni áætlana hafa verið skipulagðar rýmingaræfingar auk kynninga fyrir starfsfólk.

Við erum mjög reynd í að nota tæknilegar áhættugreiningar auk einfaldara áhættumats og erum leiðandi í notkun áhættugreiningaraðferða í brunahönnun bygginga. Þær höfum við unnið fyrir fjölbreyttan hóp viðskipatvina og skrifað og kynnt fjölmargar greinar á virtum ráðstefnum víða um heim. Með greiningunum er hægt að besta brunavarnir, einkum í stærri og flóknari byggingum, en þær geta einnig gagnast til að kanna afmarkaða þætti við minni verkefni.


Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi