Fréttir
Allar fréttir
17.09.09 Málstofa um hljóðvist í leik-og grunnskólum
Málstofa um hljóðvist í leik-og grunnskólum verður haldin föstudaginn 25.september næstkomandi. Ólafur Daníelsson, hljóðráðgjafi á hljóðvistarsviði EFLU mun flytja erindi um rannsóknarverkefni sem unnið var í samstarfi við framkvæmdarsvið Reykjavíkurborgar.
(+) nánar30.05.09 Mælingar á hljóðstigi frá mismunandi gerðum slitblaða í snjótennur.
Framkvæmdar voru mælingar frá mismunandi tegundum slitblað fyrir snjótennur. Niðurstöður mælinga voru bornar saman við reglugerðarviðmið samkvæmt reglugerð um hávaða nr.724/2008.
(+) nánar28.05.09 Hljóðvist skólabygginga - Samanburður á viðmiðunargildum, mæligildum og áliti notenda.
Rannsóknarverkefni í samstarfi við Reykjavíkurborg var unnið á hljóðvistarsviði EFLU. Verkefnið ber heitið Hljóðvist skólabygginga, Samanburður á viðmiðunargildum, mæligildum og áliti notenda. Nýjar áherslur í kennsluháttum hafa í för með sér breyttar forsendur fyrir hljóðvistarhönnun.
(+) nánar25.05.09 Ráðstefna um hljóðvist í Reykjavík
Um miðjan ágúst á síðasta ári var haldin hér á landi samnorræn og baltneskt ráðstefna um hljóðvist, Joint Baltic-Nordic Acoustics Meeting. Almennt er viðfangsefni ráðstefnunnar sem haldin er annað hvert ár allt sem viðkemur hljóði og hljóðvist þar sem þó er lögð áhersla á ákveðin sérsvið innan hljóðfræðinnar hverju sinni.
(+) nánar01.01.09 Endurbætur á hljóðvist á bifreiðaverkstæði
Á hljóðsviði Línuhönnunar er fengist við margvísleg og fjölbreytt verkefni. Fyrir nokkru unnu starfsmenn sviðsins að bættri hljóðvist á verkstæði Bifreiða- og Landbúnaðavéla að Grjóthálsi 1. Um er að ræða verkstæði þar sem minni viðgerðir á bifreiðum og fínstillingar fara fram. Í upphafi verksins voru framkvæmdar annars vegar hljóðstigsmælingar og hins vegar var ómtími rýmisins mældur. Ómtími rýmisins reyndist talsvert langur eða meðalómtími um 1,66 s.
(+) nánar