Þjónusta

Starfsmenn Fjarskipta og gagnveitna eru sérhæfðir á mörgum sviðum rafmagnsfræðinnnar. Fjarskiptakerfi, sérhæfð rafkerfi, gagnaver og öryggismál auk sérhæfingar í verkeftirlit við rafmagn er okkar fag.
Sérkerfi (sérhæfð rafkerfi) af ýmsum toga verða sífellt fyrirferðarmeiri hluti hvers mannvirkis. Starfsmenn okkar sinna hönnun sérkerfa sem hluta stærri verkefna eða óháð öðrum hönnunarþáttum. Öryggiskerfi af ýmsum toga teljast sérkerfi.

Fjarskipti eru forsenda þess að starfræn, gagnvirk tæki og tölvukerfi nýtist notendum. Starfsmenn EFLU búa yfir langri reynslu og traustri þekkingu á uppbyggingu fjarskiptakerfa af mörgum gerðum og til ólíkra nota. Við veitum ráðgjöf og leggjum á ráðin um lausnir á fjarskiptum fyrir gagnaveitur, gagnaver, tölvusali, tölvurými, skrifstofuhúsnæði og iðnaðarmannvirki.

Fjölbreytt reynsla auðveldar okkur að samræma hönnunar- og verkferli með sem hagkvæmustum hætti. Sviðið hefur að baki sér hóp sérfræðinga auk sérfræðinga annarra kjarnasviða EFLU sem unnt er að leita til, s.s. með byggingar- eða véltæknileg málefni. Reynsla okkar af hönnun, eftirliti og verkefnastjórnun á rafmagnssviðinu gerir okkur kleift að veita fyrsta flokks ráðgjöf.


Þjónusta okkar nær til eftirfarandi þátta

Fjarskiptakerfi
Öryggiskerfi
Verkeftirlit
Gagnaver 


Sviðsstjóri
Sigurður Grímsson
Sími 412 6187, tölvupóstfang: sigurdur.grimsson@efla.is


Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi