| Tækniteiknun er lykilþáttur á þjónustusviði EFLU.
Þrautþjálfað teymi teiknara sinnir verkefnum fyrir önnur kjarnasvið fyrirtækisins, allt frá götum, brúarmannvirkjum og byggingum til orkuvera og álvera.
Tækniteiknarar vinna ekki aðeins sérhæfð teiknistörf heldur annast þeir líka frágang og faglega umsjón með teikningum og tilheyrandi gögnum með hliðsjón af gæðastöðlum.
Í störfum þeirra felst einnig kerfisstjórnun teiknikerfa, framsetning og kynning gagna, og stjórnun skjalavistunar auk ýmissa skipulagsstarfa og sérhæfðra skrifstofustarfa.
Tækniteiknarar eru ómissandi tengiliðir milli ráðgjafa, hönnuða og iðnaðarmanna og annarra verktaka.
|
NÁNARI UPPLÝSINGAR
|
Sviðsstjóri
Hildur Sölvadóttir
Sími: 412 6000 Beint: 412 6113
Fax: 412 6001
Netfang:
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
|
|