SJÖ VERKEFNI HLJÓTA STYRK ÚR SAMFÉLAGSSJÓÐI EFLU
EFLA VINNUR AÐ ENDURBÓTUM Í BORGARTÚNI
EFLA FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI VR 2013
SAMSTARFSSAMNINGUR
UM RÁÐGJÖF
VIÐ ECOONLINE
![]() |
| EFLA verkfræðistofa hefur gert samstarfssamning um ráðgjöf við EcoOnline hugbúnaðinn á Íslandi.
Á undanförnum misserum hefur það sýnt sig að atvinnulífinu hefur reynst erfitt að halda utan um efnamálin í rekstrinum og mikill tími hefur farið í að afla öryggisblaða á íslensku og halda utan um réttar útgáfur og hafa þær tiltækar fyrir viðkomandi starfsmenn. Einnig hefur lögboðið áhættumat fyrir varasöm efni reynst starfsmönnum snúið.
Þróuð hafa verið efnastjórnunarkerfi til að búa til og halda utan um öryggisblöð og efnalista auk þess að auðvelda gerð efnaáhættumats og uppfylla þannig kröfur REACH. EcoOnline er eitt slíkt. EcoOnline er hugbúnaðarlausn fyrir efnastjórnun og um leið gagnabanki og eru öll gögn vistuð á netinu. Meira en 3000 norræn fyrirtæki eru nú notendur að EcoOnline t.d. Wurth, ORKLA, Shell, IKEA sem gerir það að verkum að gagnabankinn í EcoOnline inniheldur mjög mikinn fjölda varasamra efna.
Þriðjudaginn 15. maí var haldinn kynningarfundur á EFLU verkfræðistofu um efnastjórnun og kröfur REACH. Yfirskrift fundarins var, "Hvernig tökum við á efnamálum?". Þeir sem sóttu fundinn voru fyrirtæki sem innleitt hafa umhverfisstjórnun, opinberir aðilar og söluaðilar efnanna. Sama dag skrifuðu EFLA verkfræðistofa og EcoOnline undir samstarfssamning vegna ráðgjafaþjónustu milli fyrirtækjanna.
Hægt er að nálgast fría prufuútgáfu af ECOonline á verfslóðinni www.ecoonline.no
Nánari upplýsingar um ráðgjöf EFLU á sviði efnastjórnunar og um EcoOnline veitir:
Helga J. Bjarnadóttir markaðssviðsstjóri Umhverfissviðs, netfang This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. , sími 412 6078.
|















