Iðnaðarsvið EFLU hefur leyst fjölbreytt verkefni jafnt á Íslandi sem í Venesúla, Dúbaí og Kína, svo dæmi séu nefnd.
Hlutverk EFLU hefur spannað fjölbreytta ráðgjöf, hönnun og þjónustu fyrir stóriðju og annan iðnað, þar með talin rafmagns- og flutningskerfi.
Sama hvert eðli og umfang verkefnisins er, má treysta því að ráðgjöfin byggir á áratuga reynslu af skipulagningu, hönnun, og byggingu mannvirkja og kerfa fyrir margvíslegan iðnað þ.á.m. áliðnað, mjólkuriðnað, fiskiðnað, fiskimjölsiðnað, annan matvælaiðnað sem og orkuver.
Meðal þeirra framkvæmdaþátta sem sérhæfing Iðnaðarsviðsins nær til eru rafmagnskerfi, ljóstækni, veitur, loftræsikerfi, aðgangskerfi, öryggiskerfi, fjarskiptakerfi , tölvu- og stjórnkerfi. Iðnaðarteymi EFLU annast alla þjónustu, frá áætlunargerð til afhendingar.
Áralöng reynsla á þessu krefjandi sviði hefur aflað EFLU orðspors fyrir þróun hagkvæmra og sveigjanlegra lausna með hag viðskiptavinarins að leiðarljósi.
Um leið hefur umfangsmikil þekking á rafmagnskerfum og stýritækni lagt grunn að margreyndu hússtjórnarkerfi EFLU fyrir verksmiðjur, framleiðslumannvirki, íþróttamannvirki og stærri byggingar.
Óháð tegund verkefnis, vinnur Iðnaðarsvið EFLU náið með viðskiptavinum.
Víðtæk verkfræði- og tæknireynsla og hagnýt þekking á verkferlum gerir iðnaðarsviði EFLU kleift að nálgast verkefni á hvaða stigi sem er og veita margvíslega þjónustu af fagmennsku og með eins hagkvæmum hætti og hægt er.
Iðnaðarsvið EFLU sinnir m.a.
- Áliðnaði
- Matvælaiðnaði
- Efnaiðnaði
- Gerð rafkerfa og stýrikerfa
- Fjarskiptum og gagnaveitum
- Hússtjórnarkerfum
- Fiskiðnaði
|
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
|
Markaðssviðsstjóri
Brynjar Bragason
Sími: 412 6000 Beint: 412 6058
Fax: 412 6001
Netfang:
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
|
|