Kísilmálmverksmiðja á Bakka við Húsavík

Í athugun er bygging verksmiðju PCC SE til framleiðslu á kísilmálmi við Bakka á Húsavík með framleiðslugetu sem nemur 66.000 tonnum á ári. Verksmiðjan verður byggð í tveimur áföngum og miðast fyrsti áfangi hennar við 33.000 tonna framleiðslugetu á ári. Aflþörf fyrsta áfanga er 52 MW og fullbyggðrar verksmiðju 104 MW. Gert er ráð fyrir að fyrirtækinu verði úthlutuð um 20 ha lóð innan skilgreinds iðnaðarsvæðis í sveitarfélaginu Norðurþingi og að orkunnar sem þarf til framleiðslunnar verði aflað frá virkjunum á háhitasvæðinu í Þingeyjarsýslum. Áætlað er að verksmiðjan muni skapa um 150 framtíðarstörf, að ótöldum þeim störfum sem verða til vegna kaupa á þjónustu og orku.

 

Framkvæmdin er matsskyld skv. 5. tl. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum. PCC SE hefur falið verkfræðistofunni EFLU að annast mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.

 

Tillaga að matsáætlun, sem nú er til kynningar til 17. janúar 2012, er verkáætlun um þá matsvinnu sem er að hefjast. Í henni er gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar og áhersluþáttum mats á umhverfisáhrifum eins og það verður birt í frummatsskýrslu.

 

Í tillögu að matsáætlun er lagt til að þeir þættir umhverfisins sem fjallað verður um í frummatsskýrslu séu eftirfarandi: loftmengun, hljóðvist, gróður og fuglalíf, umhverfisáhrif á framkvæmdatíma, samfélagsleg áhrif, áhrif á landslag og sjónræna þætti, fornleifar, flutningur og geymsla efna, áhættu og öryggismál. Lagt verður mat á áhrif starfseminnar, bæði á framkvæmda- og rekstrartíma, á þessa þætti.

 

Við undirbúning draga að matsáætlun var framkvæmdin og áherslur matsvinnunnar kynntar Skipulagsstofnun og sveitarfélaginu Norðurþingi. Opinn kynningarfundur fyrir almenning  var haldinn í Fosshóteli á Húsavík, þann 13. desember 2011 með fulltrúum PCC SE. Við meðferð Skipulagsstofnunar á tillögu að matsáætlun verður leitað umsagnar Norðurþings, Fornleifaverndar ríkisins, Hafrannsóknarstofnuninar, Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra, Mannvirkjastofnunar, Umhverfisstofnunar, Veðurstofu Íslands og Vinnueftirlits ríksins. Á meðan á vinnslu frummatsskýrslu stendur verður áhersla lögð á áframhaldandi samráð við ofangreinda aðila og aðra hagsmunaaðila, í samræmi við ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br.

 

Almenningi og hagsmunaaðilum gefst nú tækifæri til að kynna sér tillögu að matsáætlun og koma með athugasemdir. Tillagan verður aðgengileg frá 3. janúar til 17. janúar 2012. Athugasemdafrestur rennur út þann 17. janúar 2012.

 

Koma skal athugasemdum til:

 

Skipulagsstofnunar

Laugavegi 166

105 Reykjavík

 


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT