Efnistaka í Stapafelli á Reykjanesi
EFLA verkfræðistofa hefur, fyrir hönd Ístaks, lagt fram frummatsskýrslu vegna efnistöku í Stapafelli á Reykjanesi.
Um verkefnið
Efnistaka hefur átt sér stað í Stapafelli síðan í kringum árið 1950 þegar uppbygging byrjaði á varnarliðssvæðinu. Vegna breytts lagaumhverfis og til að festa námuna í sessi sem framtíðarefnistökustað er nú nauðsynlegt að fjalla um námuvinnsluna í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Drög að tillögu að matsáætlun var kynnt almenningi um tveggja vikna skeið í september 2016, og liggur nú frummatsskýrsla frammi.
Í henni er lagt mat á áhrif framkvæmda á eftirfarandi þætti: Vatnsvernd, ásýnd og landslag, fugla og spendýr, gróðurfar, náttúruminjar, fornleifar, umferð og jarðmyndanir. Einnig er lagt mat á samlegðaráhrif á efnistöku m.t.t. ásýndar og landslags, og jarðmyndana.
Frummatsskýrsla í kynningu
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 2. maí 2017
Frummatsskýrslan liggur frammi til kynningar frá 17. mars – 2. maí 2017 hjá Skipulagsstofnun og á heimasíðu EFLU verkfræðistofu. Allir hafa rétt til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. maí 2017 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík.