Hvammsvirkjun - endurskoðun umhverfismats
Frummatsskýrsla tekin til meðferðar hjá Skipulagsstofnun vegna Hvammsvirkjunar, endurskoðun á mati á umhverfisáhrifum: Ferðaþjónusta og útivist, landslag og ásýnd lands.
Um verkefnið
Skipulagsstofnun hefur tekið til meðferðar frummatsskýrslu Landsvirkjunar vegna endurskoðunar mats á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar og er hún nú aðgengileg almenningi og hagsmunaaðilum. Frummatsskýrsluna og rafrænan útdrátt hennar má nálgast á slóðinni www.hvammur.landsvirkjun.is Einnig er hægt að nálgast skýrsluna neðst í greininni. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdafrestur
Kynningartími stendur yfir í 6 vikur eða frá 24. maí til 6. júlí 2017. Athugasemdir við frummatsskýrslu skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 6. júlí 2017 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is
Á vef Skipulagsstofnunar, www.skipulag.is, fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Opið hús
Á kynningartíma er áætlað að halda opin hús í Árnesi, í Rangárþingi ytra og í Reykjavík. Staðsetning og tímasetning verður auglýst í svæðismiðlum sem og á vef verkefnisins: www.hvammur.landsvirkjun.is
Nánari upplýsingar um HvammsvirkjunSkjöl
Frummatsskýrsla
Fylgigögn
Bifreiðartalningar í Þjórsárdal og á Landvegi
Mat á áhrifum á landslag og ásýnd