ORKA
Budarhalsvirkjun_main

Hönnun og rekstur orkuvera og raforkuflutningskerfa er flókið viðfangsefni sem krefst mikillar sérfræðiþekkingar og reynslu auk þess sem taka þarf tillit til áhrifa slíkra mannvirkja á umhverfið.

EFLA hefur yfir 30 ára reynslu í orkugeiranum og hefur sinnt verkefnum í um 30 löndum, oft á stöðum þar sem aðstæður eða veðurfar gera verkefni erfið viðfangs.

 

Fyrirtækið hefur skipað sér í fremstu röð ráðgjafa á sviði raforkuflutningskerfa og við nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.

Orkusvið EFLU veitir heildstæða verkfræðiráðgjöf við hönnun og byggingu raforkuvera og flutningslína auk ráðgjafar við ýmis önnur sérhæfð verkefni í orkumálum og er áhersla lögð á hagkvæmar og umhverfisvænar lausnir.

Með sérhæfingu getur Orkusvið veitt traustar og heildstæðar lausnir við hönnun og rekstur orkuvera og flutningskerfa, í umhverfismálum, jarðtækni, landmælingum, og séð um verkefnastjórnun

Áralöng starfsemi EFLU erlendis hefur leitt til þess að stofnuð hafa verið fyrirtæki sem sinna orkumálum, oft sem hlutdeildarfélög, í Frakklandi (Hecla), Póllandi (Ispol), Tyrklandi (Turkison), Rússlandi (Addison) og Noregi (EFLA A/S). 

 

Þjónusta orkusviðs EFLU felur m.a. í sér:

  • Orkumálaráðgjöf, gagnavinnslu og gagnastýringu
  • Gerð orkuspáa
  • Greiningu raforkukerfa og áætlanagerð
  • Mat á gæðum raforkuafhendingar
  • Hönnun orkuflutningskerfa
  • Hönnun tengivirkja
  • Hönnun eða endurnýjun vatnsaflsvirkjana
  • Hönnun jarðvarmavirkjana og veitna
  • Ráðgjöf varðandi rekstur orkumannvirkja
  • Mat á umhverfisáhrifum
  • Véla- og varmaverkfræði

 

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR

Markaðssviðsstjóri

Jón Vilhjálmsson

Sími: 412 6000   Beint: 412 6139

FAx: 412 6001

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT