75 km af háspennulínunni sem tengir Fílabeinsströndina við Burkina Faso í Vestur-Afríku liggur Fílbeinsstrandarmegin. Strax eftir byggingu línunnar 1999 féllu tvö möstur án neinna beinna skýringa.
Verkkaupi og ráðgjafar (Europe power consultants, Sidelaf, Transel, ETDE), samþykktu að Árni Björn Jónasson hjá Eflu myndi dæma um ábyrgð aðila út frá tæknilegri úttekt. Skýrsla á frönsku var útbúin hjá Eflu með skýringum hvers vegna möstrin hefðu hrunið. Gerð var kostnaðaráætlun um styrkingu mastra.