| Hlutverk EFLU er að koma fram með lausnir sem stuðla að framförum og efla samfélagið, með því að því veita alhliða ráðgjöf í verkfræði og tækni, ásamt því að stunda þróunarstarfsemi og rannsóknir á tengdum sviðum.
EFLA starfar samkvæmt vottuðu gæðakerfi (ISO 9001), vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi (ISO 14001) og vottuðu öryggisstjórnunarkerfi (OHSAS 18001). Í gæðakerfi fyrirtækisins kemur fram stefna þess á afmörkuðum sviðum, þar á meðal gæðastefna, mannauðsstefna, jafnréttis- og fjölskyldustefna og umhverfis-, öryggis- og samgöngustefna.
EFLA hefur vistvænan hátt á öllum rekstri í samræmi við ISO 14001-vottun fyrirtækisins. Stjórnkerfið felur í sér greiningu og mat á helstu starfsþáttum sem hafa áhrif á umhverfið og miðast við að lágmarka eða koma í veg fyrir neikvæð umhverfisáhrif, jafnt í daglegum rekstri og þjónustu sem innkaupum.
Gildi fyrirtækisins eru: Hugrekki-Samvinna-Traust.
|
|
Prentvæn útgáfa
|
|