Suðurlandsvegur
Vesturlandsvegur -
Hólmsá
Vegagerðin áformar að tvöfalda Suðurlandsveg frá vegamótum Vesturlandsvegar að Hólmsá ofan Reykjavíkur. Aðlaga þarf tengingar mislægra vegamóta við Bæjarháls og tengingar við hringtorg við Breiðholtsbraut. Tvöfalda þarf hringtorg við Norðlingavað og byggja veggöng og aðlaga tengingu við Heiðmörk. Byggð verða mislæg vegamót við Hafravatnsveg og aðlaga þarf lýsingu, reið-, hjóla og gönguleiðir að nýjum tvöföldum vegi. Byggður verður 2 + 2 vegur og tengingum verður fækkað frá því sem nú er. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með því að aðskilja akstursstefnur. Vegurinn verður byggður í áföngum.

Vesturhluti fyrirhugaðs framkvæmdasvæðis frá Vesturlandsvegi að Rauðavatni hefur þegar verið undirbúinn og verða akreinar byggðar austan og norðan núverandi vegar. Við vegamót Breiðholtsbrautar er landrými takmarkað og einnig er þrengt að vegsvæði við Rauðavatnsskóg. Á þeim vegkafla verður byggður vegur með þröngu vegsniði. Suðurlandsvegur liggur síðan á bökkum Bugðu (Hólmsár) austan Norðlingaholts á svæði sem að stórum hluta hefur verið raskað með ýmsum framkvæmdum. Lögð verður áhersla á að raska ekki ánni og árbakkanum og því verður vegurinn tvöfaldaður til suðurs eftir að vegurinn þverar Bugðu (Hólmsá) og aftur verður yfirfærsla og breikkun til norðurs þegar farið verður yfir ána í annað sinn.

 

Mat á umhverfisáhrifum

Framkvæmdin er matsskyld skv. tl. 10. ii. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.

Í frummatsskýrslu er fjallað um þá þætti umhverfisins sem hugsanlega geta orðið fyrir umtalsverðum umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar, bæði á framkvæmdatíma og rekstrartíma. Lögð áhersla á náttúrufar, fornleifar, hljóðvist, landslag og sjónræna þætti, útivist, samgöngur og umhverfisáhrif á framkvæmdatíma.


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT