| Landsnet hf. hyggst byggja upp og styrkja raforkuflutningskerfið á Suðvesturlandi. Markmið framkvæmdanna er að byggja kerfið upp til framtíðar þannig að það verði í stakk búið til að mæta framtíðaráformum um orkuflutning á svæðinu, jafnt fyrir atvinnustarfsemi og til almannanota.
Áform um uppbyggingu orkuvera á svæðinu eru ein af forsendum Landsnets fyrir framkvæmdinni. Einnig liggur fyrir þörf á styrkingu raforkuflutningskerfisins á Reykjanesskaga til að koma í veg fyrir truflanir og til að auka afhendingaröryggi raforku á svæðinu. Önnur meginforsenda framkvæmdarinnar eru fyrirætlanir um uppbyggingu orkufreks iðnaðar og annarrar starfsemi á Suðvesturlandi, s.s. netþjónabúa, álvera og kísilverksmiðju. Eftirspurn eftir raforku hefur aukist mjög á undanförnum árum.
Framkvæmdin er matsskyld skv. 22. tl. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum. Verkfræðistofan EFLA verkstýrir mati á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar fyrir hönd Landsnets hf. Stefnt er að því að framkvæmdir við línurnar geti hafist haustið 2009 og að þeim verði lokið um mitt ár 2012. Þessar tímasetningar eru þó birtar með fyrirvara um breytingu.
|
|
Prentvæn útgáfa
|
|