|
Hafin er vinna að nýju við undirbúning mats á umhverfisáhrifum fyrir 1. áfanga Sundabrautar í Reykjavík, vegtengingu yfir Elliðavog. Áður fór fram mat á umhverfisáhrifum árið 2004. Þá voru lagðir fram 3 valkostir.
Til mats á umhverfisáhrifum nú er lagður fram einn nýr valkostur, Sundagöng frá Laugarnesi upp í Gufunes sem og breytt lega á áður framlögðum valkosti; Eyjalausn á leið III. Veglína Eyjalausnar sem nú er til skoðunar liggur utan við Gufuneshöfðann á landfyllingu í stað þess að fara í gegnum höfðann.
Forsendur
Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á höfuðborgarsvæðinu með því að létta á umferðarþunga á öðrum vegum, auka öryggi í samgöngum með styttingu vegalengda og aukinni umferðarrýmd, auka hagræði í samgöngum og atvinnustarfsemi og opna fyrir þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu til norðurs og norðausturs.
Í drögum að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd, framkvæmdarsvæði og áhrifasvæði lýst. Umfangi umhverfismatsins er lýst og fjallað um hvaða umhverfisþættir verða skoðaðir og hverjir ekki teknir fyrir.
|
|
Prentvæn útgáfa
|
|