GAGNAVER

Gagnaver geta verið af mörgum stærðum, gerðum og útfærslum.

Á Íslandi taka gagnaver og netþjónabú mið af stærð íslenska markaðarins.

Gagnaverin hafa hingað til verið lítil á alþjóðavísu en nú hafa erlendir aðilar komið auga á kosti Íslands sem nýtast vel við rekstur gagnavera.

Möguleikar Íslands felast fyrst og fremst í lágu orkuverði og góðum kælimöguleikum.

 

Útihiti er að jafnaði mjög lágur og loftraki að sama skapi.

Á Íslandi þarf  því minni raforku til reksturs gagnavera en í flestum öðrum löndum heims og kalda loftið kostar ekkert.

Raforkukerfi landsins er mjög öruggt og truflanir á því afar fátíðar.

Á sama hátt er fjarskipta-dreifikerfið innanlands mjög öruggt og víðtækt. Öflugar ljósleiðaratengingar liggja til Evrópu og Ameríku.

 

EFLA hefur gegnum árin séð um hönnun margra gagnavera og tölvusala og öðlast þannig verðmæta reynslu sem nýtist þeim aðilum sem hyggja á uppbyggingu gagnavera á Íslandi.

Sérfræðingar okkar veita ráðgjöf á sviði orkuöflunar, umhverfismála, rafkerfa, lagnakerfa, kælingar, fjarskiptakerfa og öryggismála.

Jafnframt tökum við að okkur verkefnisstjórnun og eftirlit.

Sérfræðingar EFLU vinna samkvæmt helstu öryggisskilgreiningum svo sem The Uptime Institude og TIA-942.

Við komum að hönnun og skipulagningu á uppbyggingu stórra sem smárra gagnavera og bjóðum fram heildarlausnir hvað varðar hönnun og byggingu gagnavera.  

 

Þjónusta  

 

  • TIER
  • N+1
  • Rafdreifikerfi
  • Há- og millispenna
  • Rafdreifitöflur
  • PDU
  • Varaaflgjafar
  • UPS
  • Fjarskiptakerfi
  • Rafstöðvar
  • Jarðskaut
  • Kælikerfi
  • Loftkæling
  • Sjókælig
  • Free Cooling
  • Öryggiskerfi
  • Ofurnæmt brunaviðvörunarkerfi
  • Gasslökkvikerfi
  • Þokusprinklerkerfi
  • Olíugeymar
  • Olíudreifikerfi
  • Upplýsingakerfi
  • Hússtjórnarkerfi
  • Framkvæmdaeftirlit
  • Verkefnastjórnun
  • Útboðsgögn


Reynslubankinn

Fjarskiptafyrirtæki, hýsingarfyrirtæki, fjármálastofnanir, verksmiðjur, Vegagerðin, opinberir aðilar.

 

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR

Sigurður Grímsson

Sími: 412 6000   Beint: 412 6187

Fax: 412 6001

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

                         

Rúnar H. Steinsen

Sími: 412 6000   Beint: 412 6185

Fax: 412 6001

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

                       

 

 

 

 

Jón Vilhjálmsson 

Sími: 412 6000   Beint: 412 6187

Fax: 412 6001 

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 

 


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT