Í mannvirkjagerð er algengt að hönnun mannvirkisins og hönnunarrýni séu í höndum fjölda óháðra faghönnuða.
Samskipti hönnuða og rýna við aðstæður eins og þessar geta verið flókin, til að forðast tafir og dýrkeypt framkvæmdamistök geta skipulag og hnökralaust upplýsingaflæði haft úrslitaþýðingu.
Efla býður viðskiptavinum sínum stýringu á hönnunarrýni þar sem öll samskipti og vistun gagna er á miðlægum verkefnavef.
Stýring á hönnunarrýni felur í sér að haldið er utan um gagnaflæði í hönnunarvinnu og séð til þess að það sé fljótvirkt og greinilegt, þannig að hlutaðeigandi aðilar séu alltaf vel upplýstir um framvindu vinnunnar.
Þegar hönnuðir gefa út teikningu eða önnur hönnunargögn er séð til þess að þau berist tafarlaust til rétts fagráðgjafa ásamt verkkaupa til rýni.
Séð er til þess að fagráðgjafar vinni úr teikningunni innan ákveðins tíma.
Því næst er teikningin eða gögnin send aftur til hönnuða til úrbóta, ef athugasemdir fagráðgjafa gefa tilefni til þess.
Samþykktar teikningar og önnur hönnunargögn eru að lokum send til verkkaupa til dreifingar.
Stýring á hönnunarrýni er þjónusta sem er mjög ábatasöm fyrir framkvæmdaaðila sem hyggjast reisa mannvirki þar sem margir ólíkir aðilar koma að hönnunarvinnu.
Algengt er að um 90% af kostnaði við byggingu mannvirkis sé varið á verkstað, og með stýringu hönnunarrýni er lagður grunnur að því að þeim fjármunum sé ráðstafað á besta mögulega hátt.
Reynslubankinn:
- Harpa, tónlistar og ráðstefnuhús Reykjavíkur
- Harpa, bílakjallari
|
NÁNARI UPPLÝSINGAR
|
Sviðsstjóri verefnastjórnunarsviðs
Sigríður Sigurðardóttir
Sími: 412 6000 Beint: 412 6184
Fax: 412 6001
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|