VISTVÆN
HÖNNUN

Sífellt aukin áhersla er lögð á að vörur, þjónusta og almenn starfsemi fyrirtækja og stofnana samræmist hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.

Eitt grundvallarmarkmið sjálfbærrar þróunar er að núlifandi kynslóðir mæti sínum þörfum án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að mæta þörfum framtíðarinnar.

 

Vistvæn hönnun bygginga leitast við að framfylgja þessu markmiði með því að tryggja að framkvæmdir, rekstur, viðhald og förgun krefjist sem minnsts tilkostnaðar í formi fjármagns og umhverfisáhrifa.

Auk þess leggur vistvæn hönnun áherslu á að hámarka endingu bygginga sem og gæði ss. loftgæði, lýsingu og hljóðvist, þannig að starfsumhverfi notenda sé eins og best verður á kosið.

Vistvæn hönnun á erindi við þá framkvæmdaraðila sem vilja að starfsemi þeirra sé á umhverfisvænum forsendum, og að byggingar þeirra endist vel, rekstrarkostnaður sé í lágmarki og að notendum byggingarinnar sé búinn góður íverustaður.

Á þann hátt er stuðlað að því að notagildi hússins varðveitist og að þeir fjármunir sem varið er í byggingu og rekstur þess séu nýttir á besta mögulega máta.

 

Efla hefur innan sinna raða sérfræðinga sem eru viðurkenndir matsmenn innan BREEAM vottunarkerfisins fyrir vistvæna vottun bygginga.

Þannig getur EFLA boðið viðskiptavinum sínum heildstæða lausn á sviði vistvænnar hönnunar sem felst í yfirumsjón hönnunarvinnu, lausn ólíkra fagþátta, sem og umsjón með vottun fullgerðs mannvirkis.

 

Þjónustuþætti innan vistvænnar hönnunar sem EFLA býður viðskiptavinum sínum eru:

  • Hönnunastýring
  • Vistferilsgreiningar (LCA, Life Cycle Assesment)
  • Vistferilskostnaðargreining/Líftímakostnaðargreining (LCC, Life Cycle Cost)
  • Umhverfisstjórnun á framkvæmdatíma
  • Umhverfisstefna
  • Grænt bókhald og kolefnisspor bygginga/framkvæmda
  • BIM upplýsingalíkön
  • Hönnun rafbúnaðar og raflagna
  • Burðarþolshönnun
  • Loftræsihönnun
  • Lagnahönnun
  • Hljóðvistarhönnun
  • Lýsingarhönnun
  • Sjálfbærar ofanvatnslausnir
  • Ræktun og viðhald grænna svæða
  • Vistvænar samgöngur
  • Vottun vistvænna mannvirkja skv. BREEAM vottunarkerfinu

 

Reynslubankinn:

Gestastofa að Skriðuklaustri í Vatnajökulsþjóðgarði

Gestastofa að Hellissandi í Snæfellsnesþjóðgarði

Hús íslenskra fræða

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR

Sviðsstjóri umhverfissviðs

Helga Jóhanna Bjarnadóttir

Sími: 412 6000  Beint: 412 6109

Fax: 412 6001

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT