ÖRYGGISMÁL

EFLA veitir fyrirtækjum og stofnunum alhliða ráðgjöf í öryggismálum. Öryggismálin geta varðað innbrotavarnir, brunavarnir, vinnuvernd, rýmingar- og flóttaleiðir, notkun skaðlegra efna og annað sem viðkemur öryggi rekstrar, fólks, bygginga eða umhverfis.

 

Oft koma upp atvik í fyrirtækjum, sem geta haft neikvæð áhrif á reksturinn og öryggi fólks. Eftir því sem gagnvirkni í starfseminni eykst verður þörf fyrir heildræna nálgun öryggis- og áhættustýringar meiri. Markmiðið er að minnka líkur á slíkum atburðum og búa fyrirtæki undir áföll og neikvæðar afleiðingar þeirra.

 

Áhættustjórnun er mikilvægur þáttur til að ná þessum markmiðum, en í henni felast eftirfarandi þættir:

  • Skilgreining umfangs og stefnu
  • Greining á ógnum, líkum á þeim og afleiðingum þeirra
  • Ákvörðun áhættu og mat á hvað sé ásættanlegt í þeim efnum
  • Lágmörkun áhættu og skilgreining varna
  • Gerð viðbragðsáætlana og tilheyrandi æfingar
  • Skilgreining á ábyrgð og hlutverkum starfsfólks
  • Uppsetning kerfis til endurskoðunar og eftirlits með áhættu

 

 EFLA hefur yfirgripsmikla sérfræðiþekkingu og reynslu í öryggisúttektum og -greiningu auk hönnunar öryggisbúnaðar og -kerfa. Algengt er að fyrirtæki líti eingöngu til tæknilegra öryggiskerfa, en líti framhjá byggingartæknilegum vörnum og áhættuþáttum í starfseminni, en slíkt getur jafnvel skipt meira máli en kerfisvarnirnar og leitt til hagkvæmra heildarlausna. Mikilvægt er að líta heildstætt á öryggismál með kerfisbundnum greiningum, allt frá ógnargreiningu, að deilihönnun umhverfis og búnaðar. EFLA hefur séð um gerð öryggisáhættugreininga og áfallaþolsgreininga, og hannað öryggiskerfi og búnað, s.s. myndavélakerfi og innbrotavarnakerfi fyrir nær allar tegundir atvinnu- og frístundastarfsemi. 

 

EFLA hefur mikla reynslu í gerð viðbragðsáætlana fyrir mismunandi starfsemi og vegna ólíkrar  áhættu. EFLA hefur séð um gerð rýmingaráætlana vegna bruna og annarrar hættu, viðbragðsáætlana vegna umhverfisáhættu og skemmdarverka og þarfagreininga vegna neyðarsamskipta og neyðarviðbragða.  Einnig sér EFLA um framkvæmd áhættumats starfa og veitir ráðgjöf varðandi  umhverfis- og öryggisstjórnun m.a. skv. alþjóðlegu stöðlunum ISO 14001 og OHSAS 18001.

 

Á meðal þjónustusviðanna eru:

  • Öryggis- og áhættustjórnun
  • Öryggisáhættugreiningar og þarfagreiningar
  • Hönnun öryggiskerfa og -búnaðar, s.s. myndavélakerfa og innbrotavarnarkerfa
  • Viðbragðs- og rýmingaráætlanir
  • Öryggis- og rekstrarhandbækur
  • Umhverfisöryggismál og meðhöndlun skaðlegra efna
  • Vinnuvernd og áhættumat starfa
  • Námskeið um öryggismál
  • Tæknilegar áhættugreiningar
  • Hermun sprenginga og hönnun sprengivarna
  • Áhættu- og óvissustjórnun verkefna
  • Samfelldniáætlanir vegna reksturs
  • Öryggisstjórnun rafveitna og rafmagnsöryggismál
  • Öryggis- og áhættugreiningar í samfélagslegum innviðum og samgöngumannvirkjum
  • Brunaöryggismál og brunahönnun

NÁNARI UPPLÝSINGAR

Sviðsstjóri

Böðvar Tómasson

Sími: 412 6000 Beint: 412 6061

Fax: 412 6001

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

.


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT