Þorlákshafnarlínur
2 og 3,
220 Kv

Landsnet hf hyggst byggja tvær 220 kV háspennulínur milli Hellisheiðar og Þorlákshafnar til að mæta fyrirhugaðri orkuþörf vegna iðnaðaruppbyggingar í Þorlákshöfn. Megin forsendur Landsnets fyrir framkvæmdinni eru fyrirætlanir um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þorlákshöfn og fyrirhuguð sala raforku af háspennukerfinu.

Til að uppfylla afhendingaröryggi er fyrirhugað að leggja tvær línur. Önnur línan yrði lögð frá tengivirki við Kolviðarhól og hin frá fyrirhuguðu tengivirki á Hellisheiði. Lagðir eru fram tveir valkostir að legu línunnar frá tengivirki á Hellisheiði, og þrír valkostir að legu línu frá tengivirki við Kolviðarhól.

Háspennulínurnar eru matsskyldar skv. 22. tl. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum, þar sem taldar eru upp framkvæmdir sem ávallt eru háðar mati á umhverfisáhrifum. Verkfræðistofan Línuhönnun verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmdaraðila. Vinna við mat á umhverfisáhrifum er hafin.

Stefnt er að því að framkvæmdir við línurnar geti hafist haustið 2009 og að þeim verði lokið árið 2010. Þessar tímasetningar geta þó breyst.


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT