UMHVERFI
umhverfi

EFLA fæst við mörg svið umhverfismála og ýmsa þætti náttúrunnar og er ljóst að fáir þættir verkfræði og þekkingar vekja eins mikla athygli almennings og umhverfismál í sínum mörgu myndum.

Mikil reynsla við að stjórna og vinna að krefjandi verkefnum á ólíkum svæðum á Íslandi og víða um heim hefur séð EFLU fyrir sérfræðiþekkingu og kunnáttu sem dugar til að sinna mjög fjölbreyttri þjónustu á áhrifaríkan og hagkvæman hátt.

 

Umhverfissvið EFLU sér viðskiptavinum sínum fyrir áreiðanlegri fagráðgjöf á sviði umhverfismála, hvort sem verkefnin eru í lofti, á láði eða legi, eða snerta skipulag þéttbýlis eða dreifbýlis, náttúruvernd eða jarðtækni, svo eitthvað sé nefnt.

 

EFLA hagnýtir þverfagleg teymi til þess að veita gæðaþjónustu við lausn flókinna verkefna eins og vistferilsgreiningu (LCA), mat á umhverfisáhrifum og ráðgjöf við meðhöndlun úrgangs, jarðvinnu og jarðgangagerð.

 

Innan umhverfissviðsins starfar reynt lið sérfræðinga í verkfræði, tæknigreinum, jarðfræði, efnafræði, landafræði, vistfræði, umhverfisvísindum og skipulagi. Sérfæðingarnir samtvinna nýjustu hugbúnaðarlausnir við ráðgjöf, rannsóknir og mælingar. Rannsóknarstofa EFLU gegnir mikilvægu hlutverki við umhverfisvöktun og jarðtæknirannsóknir sviðsins og auðveldar að traustar og hagkvæmar lausnir séu til reiðu.

 

Þjónusta umhverfissviðs EFLU:
  • Umhverfisskipulag
  • Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
  • Umhverfisverkfræði
  • Umhverfisstjórnun
  • Mengunarvarnir og leyfisveitingar
  • Loftslagsbókhald og útreikningar kolefnisspors
  • Náttúruvernd
  • Jarðtækni og jarðfræði
  • Landupplýsingar og landmælingar
  • Vinnuvernd og vinnustaðaöryggi
  • Náttúruvá

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR

Markaðssviðsstjóri

Helga Jóhanna Bjarnadóttir

Sími: 412 6000   Beint: 412 6109

Fax: 412 6001

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 

 

 

 


Prentvæn útgáfaPrentvæn útgáfa
deila Email PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT PLG_ITPSOCIALBUTTONS_SUBMIT