Óháð stærð, umfangi eða staðsetningu verkefna þarf að beita vel skilgreindri og sérsniðinni verkefnisstjórnun við framkvæmdir.
Árangursmiðuð verkefnisstjórnun hefur verið einn af hornsteinum starfsemi EFLU allt frá stofnun fyrirtækisins.
Í næstum fjóra áratugi hefur EFLA skipulagt, unnið við og stjórnað ýmiss konar framkvæmdum um allan heim þar sem aðstæður og kröfur hafa verið afar mismunandi.
Þannig hefur fyrirtækið þjálfað reynda verkefnisstjóra og sérhæft aðstoðarfólk og komið upp stjórnunarkerfum sem hafa sannað sig endurtekið.
Í náinni samvinnu við viðskiptavini veitir verkefnisstjórnunarteymi EFLU alhliða ráðgjafarþjónustu sem sér til þess að hvert verkefni uppfylli markmið með því að samræma óskir verkkaupa, útfærslu og framlag allra sem koma að verkefninu.
Verkefnisstjórnunarþjónusta EFLU er sveigjanleg og getur innifalið eftirlit með og skipulagningu heils verkefnis frá upphafi til loka, eða stjórnun einstakra verkþátta.
Þjónustan getur falið í sér beina verkefnisstjórnun, hagkvæmnisrannsóknir, þarfagreiningu, útreikning árlegs kostnaðar og líftímakostnað mannvirkja, kostnaðar- og áætlanagerð, undirbúning útboða, samningagerð og eftirlit.
EFLA hefur séð um viðhald og endurbætur ótal mannvirkja, allt frá einbýlis- og fjölbýlishúsum til helstu menningarverðmæta þjóðarinnar og einnig leitt fram nýjar eða endurvaktar aðferðir við viðhald og hönnun mannvirkja.
Þjónusta verkefnastjórnunarsviðs EFLU:
- Framkvæmdastjórnun og eftirlit
- Hagkvæmnisathuganir
- Þarfagreiningar
- Kostnaðar- og framkvæmdaáætlanir
- Árlegur og líftímakostnaður bygginga
- Gerð útboðsgagna og samninga
- Rekstur fasteigna og viðhald
- Endurbætur mannvirkja
- Verkefnastjórnun
|
NÁNARI UPPLÝSINGAR
|
Markaðssviðsstjóri
Sigríður Sigurðardóttir
Sími: 412 6000 Beint: 412 6184
Fax: 412 6001
Netfang:
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
|
|