Iðnaður

Lýsingarhönnun | Landsbankinn í Reykjanesbæ

Landsbankinn hf, Rafholt, Reykjanesbær

EFLA sá um lýsingarhönnun fyrir útibú Landsbankans í Reykjanesbæ þegar innréttingar bankans voru endurhannaðar.

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi
Landsbankinn hf

Arkitekt
Gunnar Guðnason

Lýsingarhönnuðir
EFLA, Arnar Ingólfsson og Hörður Sanders

Verktími
2012 - 2013

Staðsetning
Reykjanesbær

Rafverktaki
Rafholt

Tengiliðir

Um hvað snýst verkefnið

Lýsingarhönnuðir EFLU fengu frjálsar hendur þegar lýsing fyrir útibú Landsbankans var endurhönnuð og nýjum innréttingum komið fyrir. Þetta er eitt fyrsta verkefni EFLU þar sem LED lýsing var notuð í meira mæli en hefðbundnir ljósgjafar. 

Hlutverk EFLU

Móttakan og inngangurinn eru römmuð skemmtilega inn með sveigðum LED lampalengjum en þess má geta að LED lamparnir koma sveigðir frá framleiðanda eftir forskrift hönnuða. Hringlaga LED lampar lýsa gönguleiðir á skemmtilegan máta með beinni og óbeinni lýsingu en biðsvæði eru lýst með  ferköntuðum hefðbundnum flúrperum (sparperum). 

Lýsingin skapar góða heildarmynd og er stýrð með DALI ljósastýrikerfi sem forritað er af EFLU. 

Verkþættir

Landsbankinn lysedesignHringlaga LED lampar lýsa gönguleiðir.

Landsbankinn lysedesignLamparnir yfir móttökuna eru sveigðir.

Landsbankinn lysedesignSkrifstofurýmið er bjart og opið.




Var efnið hjálplegt? Nei