Brú yfir vatn með borg í baksýn.

Nonnekloppen göngu- og hjólabrúin í Bergen

NoregurSamgöngur og innviðir

Hönnun á nýrri stálbrú, göngu- og hjólastíg, vatns- og fráveitukerfi, lýsingu, jarðtæknileg hönnun á fyllingum undir vatni og gerð útboðsgagna.

Viðskiptavinur
  • Norska vegagerðin
Verktími
  • 2013 - 2017
Þjónustuþættir
  • Hönnun brúa
  • Jarðtækni og grundun
  • Verkefnastjórnun

Um hvað snýst verkefnið

Göngubrúin við Nygårdstangen verður hluti af nýju kerfi göngu- og hjólastíga í kringum Store Lundegårdsvatn í Bergen í Noregi. Suðurendi brúarinnar, sem stendur við slökkvistöðina í Bergen, mun standa á 6 m hárri fyllingu sem myndar útsýnispall og er einnig áætlað að byggja þyrlupall þar í framtíðinni. Við norðurenda vogsins liggur brúin yfir að opnu svæði framan við ADO Arena og Amalie Skram framhaldsskólann.

Skipulag og hönnun á göngu- og hjólastíg og hönnun á fyllingum undir vatni eru einnig hluti af verkefninu. Um er að ræða stálbrú með kassalaga þversniði með breytilegri þversniðshæð í einu 60 m hafi yfir voginn og tveimur 6 m endahöfum sem eru falin að hluta. Stöplar brúarinnar standa á niðurboruðum stálkjarnastaurum.

Umhverfismál

Umhverfisfræðilegar rannsóknir, sýnatökur og eftirlit í tengslum við fylliefni undir göngu- og hjólastíg vegna mengaðra setlaga í Store Lundegårdsvatni er í höndum verktaka.

Hlutverk EFLU

  • Val á hönnunarlausn í samstarfi við arkitekta og verkkaupa
  • Forhönnun á nokkrum mögulegum brúarhönnunarlausnum
  • Hönnun á 72 m langri stálbrú með kassalaga þversniði
  • Skipulag og hönnun á u.þ.b. 350 m löngum göngu- og hjólastíg
  • Jarðtæknileg hönnun á u.þ.b. 55.000 m3 fyllingu undir vatni
  • Hönnun á lýsingu og vatns- og fráveitukerfi
  • Gerð útboðsgagna fyrir verkið
  • Eftirfylgni og ráðgjöf á framkvæmdatíma

Ávinningur verkefnis

Verkefnið felur í sér bætta göngu- og hjólaleið fyrir vegfarendur í þessum hluta Bergen.