Viðburðir
EFLU þing - LED byltingin... og hvað svo?
Málþing um lýsingarhönnun
- Staðsetning: EFLA verkfræðistofa, Höfðabakki 9
- Tími: kl. 08:30 - 12:00
- Skráningartímabil: 1.september - 18.október 2017
Síðustu áratugi hefur LED tæknin þróast hraðar en nokkur tækni á sviði lýsingar og um er að ræða eina mestu byltingu í lýsingartækni frá upphafi. Á málþinginu verður fjallað um LED lýsingartækni, hvernig tæknin hefur þróast og hvaða möguleikar eru fyrir hendi í lýsingarhönnun með LED.
Við höfum fengið til liðs við okkur áhugaverða fyrirlesara, þar á meðal Kevan Shaw sem er marg verðlaunaður lýsingarhönnuður og hefur haldið fjölmarga fyrirlestra um allan heim. Að auki halda lýsingarhönnuðir EFLU, Kristján Gunnar Kristjánsson og Ágúst Gunnlaugsson, fyrirlestur ásamt formanni Ljóstæknifélagsins, Rósu Dögg Þorsteinsdóttur.