Egill Þorsteins

  • Egill Thorsteins
Byggingarverkfræðingur M.Sc.

Egill starfar á Orkusviði EFLU og hefur áratuga starfsreynslu á sviði háspennumannvirkja. 

Egill er með M.Sc. próf frá tækniháskóla Danmerkur (DTU) í byggingaverkfræði og er með IPMA C vottun í verkefnastjórnun. Lykilþekking hans og reynsla liggur á sviðum hönnunar háspennulína ásamt því að leiða hönnunarteymi og verkefnisstýra verkum tengdum háspennulínum, bæði innanlands og erlendis. Hann hefur jafnframt sérþekkingu á áreiðanleikagreiningum og kostnaðargreiningum. Egill hefur skrifað fjölmargar greinar um áhrif ísingar á háspennulínur sem hafa verið birtar á IWAIS (International Workshop on Atmospheric Icing of Structures), verið í alþjóðlegum vinnuhóp um loftlínur og komið að uppfærslu evrópustaðalsins um loftlínur.


Ísing á línum

12.12.2019 Fagið : Ísingarvá á loftlínum á Íslandi

Flutnings- og dreifikerfi raforku verður fyrir mikilli áraun í veðurofsa og þegar mikil ísing hleðst á loftlínur. Þrjár megingerðir ísingar eru slydduísing, skýjaísing og frostregn. Hér á landi hefur slydduísing verið mesti skaðvaldurinn og hún getur myndast hvar sem er, en mismikið eftir svæðum. Tíðni og magn slydduísingar er meira á Íslandi en þekkist í öðrum löndum. Miklar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi á magni, tíðleika og eðli ísingar. Þær eru að frumkvæði Landsnets og undir umsjón Árna Jóns Elíassonar. EFLA hefur komið að ísingarrannsóknum fyrir orkufyrirtækin í um 40 ár. Á undanförnum árum hefur Belgingur einnig komið að þessum rannsóknum. Landsnet, EFLA og Belgingur hafa í sameiningu birt nokkrar greinar um ísingu á alþjóðlegum vettvangi.