Ingimar Jóhannsson

  • Ingimar Jóhannsson

Ingimar starfar sem verkfræðingur á byggingasviði EFLU. Hann lauk grunnnámi í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og framhaldsnámi við University of Washington í Seattle árið 2018 þar sem hann sérhæfði sig í burðarþoli.

Frá útskrift hefur Ingimar starfað hjá EFLU við burðarþolshönnun, kostnaðargreiningar og verkefnastjórn ýmissa verkefna. Ingimar hefur víðtæka þekkingu á byggingaiðnaðinum og hefur einnig unnið að þróunarverkefnum innan EFLU.


hampsteypa

12.11.2021 Fagið : Hvað er hampsteypa?

Byggingariðnaðurinn er talinn vera ábyrgur fyrir um 39% kolefnislosunar á heimsvísu og því mikilvægt að huga að vistvænum lausnum þegar kemur að efnisvali í byggingaframkvæmdum. EFLA rannsakaði möguleika á nýtingu hampsteypu, framleidda úr iðnaðarhampi, við íslenskar aðstæður en hampsteypa er vistvæn lausn sem getur nýst við mannvirkjagerð. Við förum yfir niðurstöður rannsóknarinnar í greininni og næstu skref varðandi þessa lausn.