Fréttir


Fréttir

Allir öruggir heim

19.6.2013

Samfélagssjóður EFLU tók þátt í að styrkja verkefnið "Allir öruggir heim" sem er á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
  • Allir öruggir heim í vesti

Verkefnið fólst í því að gefa öllum skólum á landinu endurskinsvesti til að nota í vettvangsferðum barna í 1. bekk. Um 4.400 börn eru í árganginum á landinu öllu.

Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að vettvangsferðir séu rótgróinn hluti af skólastarfi. Til að tryggja öryggi nema í slíkum ferðum er mikilvægt að þeir séu vel sýnilegir.

Bílstjóri sér gangandi vegfaranda með endurskin úr 120-130 metra fjarlægð en ef gangandi vegfarandi er ekki með endurskinsmerki þá sér bílstjórinn viðkomandi ekki fyrr en úr 20-30 metra fjarlægð. Til samanburðar þarf bílstjóri sem ekur á 60 km hraða um 37 m til að stöðva bílinn, þ.e. ef undirlag er þurrt.

Vestin eru af vandaðri gerð og er það von þeirra sem að átakinu standa að þau snýtist skólum næstu árin. Endurskinsvesti ætti að nota allt árið um kring.

Öryggismál eru EFLU mjög hugleikin en verkfræðistofan er vottuð með öryggisstjórnunarkerfi OHSAS 18001.