Fréttir


Fréttir

Auglýst eftir umsóknum í Samfélagssjóð EFLU

6.4.2019

Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna í samfélaginu. Auglýst er eftir umsóknum í sjóðinn og er umsóknarfrestur til 15. apríl næstkomandi. 

  • samfélagssjóður
    Samfélagssjóður EFLU styður við jákvæð og uppbyggjandi verkefni.

Tvisvar á ári fara fram úthlutanir úr Samfélagssjóðnum og hafa mörg verkefni hlotið fjárstyrk. Markmið samfélagssjóðs EFLU er að styðja við framtak einstaklinga og hópa, sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Til að senda umsókn um styrk þarf að fylla út umsóknarform á vefnum fyrir 15. apríl. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um úthlutun liggur fyrir.

Nánar um Samfélagssjóðinn.