EFLA veitir sjö verkefnum styrk
Verkefnin eru:
- "Hamingjan er hér... í Reykjadal" vegna sumarbúða fyrir fötluð börn
- Ellimálaráð Reykjavíkurprófastdæma og Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar vegna orlofsbúða aldraðra á Löngumýri í Skagafirði
- Félag heyrnalausra vegna framleiðslu á þáttunum um Tinnu Táknmálsálf
- Sigríður Dögg Arnardóttir vegna útgáfu á kynfræðslubók fyrir unglinga
- Landsamkeppni í eðlisfræði vegna farar landsliðs framhaldsskólanema á Ólympíuleika í eðlisfræði
- Þróunarverkefni nemenda í Háskólanum í Reykjavík vegna þátttöku í Robosub keppninni í San Diego með kafbátinn Ægi
- Iðnaðarsafnið á Akureyri vegna breytinga á húsnæði safnsins
Tekið er á móti umsóknum í samfélagssjóðinn allt árið en úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, að vori og hausti. Í valnefnd sitja 3 aðilar sem allir starfa hjá EFLU.
Á meðfylgjandi mynd að ofan má sjá Kolbrúnu Reinholdsdóttur frá stjórn EFLU, ásamt styrkþegum, taka á móti styrkjunum.