Erindi á ráðstefnu um brúarhönnun
IABSE, brúarráðstefna, Brúarþing, alþjóðasamtök, brúarverkfræði, burðarþolsverkfræði, Magnús Arason, Ullevaal, Breiðholtsbraut, Breiðholtsbrú
EFLA tekur þátt í ráðstefnu alþjóðasamtaka brúar- og burðarþolsverkfræðinga, IABSE, sem fer fram í New York í vikunni. Þar flytur Magnús Arason, byggingarverkfræðingur, erindi um tvö ný verkefni sem EFLA hefur unnið að, Breiðholtsbrú í Reykjavík og Ullevaalbrú í Osló.
-
EFLA sá um verkfræðihönnun nýrrar göngubrúar yfir Breiðholtsbraut.
Það eru alþjóðlegu samtökin, The International Association of Bridge and Structural Engineers (IABSE), sem standa að ráðstefnunni og fer hún fram í New York dagana 4-6 september. Þátttakendur koma víðs vegar að en ráðstefnan er ætluð byggingarverkfræðingum, burðarþolshönnuðum, arkitektum, vísindamönnum, rekstraraðilum og öllum þeim sem hafa áhuga á hönnun og rekstri mannvirkja.
Viðfangsefni ráðstefnunnar í ár er „Evolving metropolis“ sem gæti útlagst sem þróun eða vöxtur borgarsamfélagsins og efnið er eftirfarandi.
- Hönnun brúa sem endast inn í næstu öld
- Húsnæði framtíðarinnar fyrir íbúa heimsins á öllum tekjustigum
- Nýjasta tækni til að skapa sjálfbært og hagkvæmt samfélag fyrir alla
- Nýjungar í burðarþolsverkfræði til að mæta vexti
Magnús Arason, byggingarverkfræðingur hjá EFLU.
EFLA sá um verkfræðihönnun nýrrar göngubrúar yfir Breiðholtsbraut.
Einnig segir Magnús frá flaggskipsverkefni EFLU í Noregi, nýju hjóla- og göngubrúnni við Ullevaal þjóðarleikvanginn í Osló sem var unnið í samstarfi við BEaM architects.
Nýja göngu- og hjólabrúin við Ullevaal þjóðarleikvanginn í Osló.