Fréttir


Fréttir

Framúrskarandi lýsingarhönnun verðlaunuð

LDA, Lighting design award, 40 under 40, 40under40, Natalie, lýsingarverðlaun

28.5.2019

Alþjóðleg lýsingarverðlaunahátíð, LDA - Ligthing Design Awards, fór fram í London síðastliðinn fimmtudag. Dótturfélag EFLU, KSLD | EFLA, sérhæfir sig í lýsingarhönnun tók á móti tveimur viðurkenningum á hátíðinni. Annars vegar fyrir lýsingarhönnun í Raufarhólshelli og þá var Natalie Redford, lýsingarhönnuður hjá KSLD | EFLU, sæmd nafnbótinni "40under40".

  • Raufarhólshellir
    Lýsingarhönnun Raufarhólshellis hefur vakið mikla athygli og hlaut til að mynda Darc Awards verðlaun, Íslensku lýsingarverðlaunin og núna LDA verðlaunin.

The Lighting Design Awards, LDA, eru ein virtustu lýsingarverðlaun í heimi lýsingarhönnunar. Einu sinni á ári fer fram uppskeruhátíð til að fagna framúrskarandi og frumlegri lýsingarhönnun og verðlauna hæfileikaríka lýsingarhönnuði og verkefni.

EFLA hannaði lýsingu í Raufarhólshelli sem hefur hlotið mikla eftirtekt og hlaut meðal annars Íslensku lýsingarverðlaunin og Darc Awards.  Á hátíðinni í ár varð verkefnið í öðru sæti í flokki útilýsingar, Public Realm and Landscape Category.

Árlega tilnefnir LDA fjörutíu hæfileikaríka lýsingarhönnuði undir fertugu og var Natalie Redford lýsingarhönnuður KSLD | EFLU ein af þeim sem hlaut nafnbótina "40under40".

20190528-1-

Hjá EFLU starfar öflugt teymi lýsingarhönnuða sem staðsettir eru á Íslandi, Noregi og í Skotlandi sem eru sérfræðingar á sviði rafkerfa og hefur hópurinn komið að fjölbreyttum verkefnum um allan heim.

Raufarhólshellir

Raufarhólshellir

Raufarhólshellir