Hreyfimyndahönnuður óskast til starfa hjá EFLU
Hæfniskröfur
- Menntun á sviði margmiðlunar, kvik- eða hreyfimyndagerðar æskileg.
- Góð færni og reynsla í þrívíddarmynda- og myndbandavinnslu.
- Reynsla af klippingu myndefnis.
- Haldbær reynsla í Adobe After Effects, Photoshop, Illustrator og Premiere.
- Þekking á teikniforritunum Cinema 4D eða Autodesk Maya.
- Sjónræn greiningarhæfni og hugmyndaauðgi.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Aðlögunarhæfni og lipurð í samskiptum.
Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í gegnum heimasíðu EFLU, fyrir 19. mars nk. Öllum umsóknum verður svarað.
EFLA er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki sem starfar á öllum helstu sviðum verkfræði og tækni. EFLA býður upp á afbragðs starfsumhverfi, áhugaverðan starfsvettvang í alþjóðlegu umhverfi og sterka liðsheild rúmlega 300 samhentra starfsmanna.