Fréttir


Fréttir

Hús og heilsa sameinast EFLU

20.8.2015

Hús og heilsa er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í rannsóknum og ráðgjöf á innivist, raka og myglu í byggingum. Tilgangur fyrirtækisins var að vekja almenning og stjórnvöld til umhugsunar um mikilvægi innilofts, sérstaklega þar sem Íslendingar dvelja mikið innandyra. Fyrirtækið hefur verið algjörlega leiðandi á þessu sviði. Núna tæpum 10 árum síðar þá er komið að tímamótum.HusOgheilsa
  • HusOgheilsa

EFLA verkfræðistofa hefur langa reynslu í greiningu skemmda í byggingum, stjórnun viðhaldsaðgerða og hefur innanborðs nokkra af helstu sérfræðingum Íslands í eðlisfræði bygginga og greiningu á rakamyndun með öllum þeim hættum sem slíku fylgir.

Það hefur nú verið ákveðið að Hús og Heilsa sameinist EFLU verkfræðistofu.

Með þessari sameiningu verður til nýtt og öflugt fagsvið innan Byggingarsviðs EFLU sem ber nafnið Hús og heilsa. Þetta fagsvið mun starfa þverfaglega með öðrum sviðum EFLU við að rannsaka og veita ráðgjöf um vellíðan notenda í byggingum. Þá þarf að huga að umhverfi, aðgengi, skipulagi, loftgæðum, innivist, hljóðvist, efnisvali, lýsingu og öryggi svo eitthvað sé nefnt.

Fagmennska, fræðsla, forvarnir og fyrirhyggja við hönnun, framkvæmdir og viðhald er undirstaðan að árangri. Fjármunir Íslendinga eru að mestu bundnir í fasteignum og til þess að þær haldi notagildi sínu sem umhverfi fólks þarf að huga að mörgum þáttum.
Fyrstu verkefni nýs fagsviðs er að halda áfram að óbreyttu rannsóknum og ráðgjöf vegna raka, myglu og innilofts og stefnan svo sett á heilstæðri ráðgjöf er varðar heilbrigði notenda í byggingum.