Mislæg gatnamót í Hafnarfirði
Framkvæmdir við mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði standa nú sem hæst. Gerð gatnamótanna er hluti af tvöföldun Reykjanesbrautar á kaflanum frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi.
EFLA kom að verkefninu með fjölbreyttum hætti og sá meðal annars um heildarhönnun fjögurra akreina vegar.
Um þessar mundir er unnið að gerð mislægra gatnamóta við vegamót Reykjanesbrautar og Krísuvíkurvegar. Samhliða er unnið að tengingu gatnamótanna við Suðurbraut, gerð göngu- og hjólastíga, hraðatakmarkandi aðgerðum á Suðurbraut og umtalsverðum breytingum á lagnakerfum veitustofnana á framkvæmdasvæðinu.
Árið 2013 hafði undirgöngum fyrir gangandi vegfarendur verið komið fyrir við Suðurholt undir Reykjanesbraut og var sú framkvæmd hluti af framtíðarbreytingum á svæðinu.
Ný vegamótabrú
Við mislægu vegamótin er vegamótabrú í byggingu og er brúin steinsteypt bogabrú í einu 30 m hafi, grunduð á bergi. Brúin myndar undirgöng fyrir Krýsuvíkurveg undir Reykjanesbraut. Stoðveggir við enda undirganganna halla 30° frá lóðréttu og forma þannig eins konar hvelfingar. Brúin rúmar fjögurra akreina Krýsuvíkurveg. Hönnun brúarinnar er unnin af EFLU í samstarfi við Studio Granda arkitekta.
Gerð gatnamótanna er hluti af tvöföldun Reykjanesbrautar á kaflanum frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi, en sú framkvæmd mun stórbæta umferðarrýmd og umferðaröryggi á svæðinu.
Vegagerðin bauð framkvæmdirnar út vorið 2017 og eru verktakar þess Loftorka og Suðurverk. Verktakakostnaður er um 900 milljónir og er áætlað að verkinu ljúki í nóvember. Þess má geta að í þessum áfanga verður Reykjanesbraut ekki tvöfölduð í tvær akreinar í hvora átt.Tengdar fréttir
Mynd 1) Fyrir breytingu - Reykjanesbraut
Mynd 1) Eftir breytingu - Reykjanesbraut, líkanmynd
Mynd 2) Fyrir breytingu - Reykjanesbraut
Mynd 2) Eftir breytingu - Reykjanesbraut, líkanmynd
Mynd 3) Fyrir breytingu - Reykjanesbraut