Fréttir


Fréttir

Ný stórskipahöfn í Nuuk

22.9.2017

Fyrsta stórskipahöfn Grænlendinga var opnuð í Nuuk í sumar og markar nýja höfnin þáttaskil fyrir atvinnulíf landsins sem til þessa hefur liðið fyrir plássleysi og þ.a.l. afmörkuð viðskiptatækifæri. 

Með tilkomu stærri hafnar skapast því frekari tækifæri til að auka efnahags- og atvinnumöguleika Grænlendinga. 

  • Stórskipahöfn í Nuuk
    Picture: Christoffer Guldbrandsen Møller

Margvíslegur efnahagslegur ávinningur

Þannig skapast fleiri möguleikar varðandi meðhöndlun, afhendingu og inn- og útflutning á vörum til og frá landinu. Að auki geta Grænlendingar afhent vöru sjálfir beint til neytenda í stað þess að fara í gegnum Álaborg í Danmörku eins og hefur verið til þessa.

Samsstarfssamningur um vöruflutninga hefur verið gerður við Eimskip og sjá Grænlendingar fyrir sér að á milli 50 til 100 ný störf skapist í Nuuk við þessar aðgerðir ásamt því sem önnur starfsemi á Norður Jótlandi færist til Grænlands.

Með tilkomu nýrrar hafnar verður einnig hægt að taka á móti stærri flutningaskipum og skemmtiferðaskipum auk þess sem allt hafnarsvæðið verður stærra. Nýjar byggingar á hafnarsvæðinu hafa risið og mun öll aðstaða batna til muna og efla athafnalíf á svæðinu.

Íslendingar hafa komið að verkefninu

EFLA verkfræðistofa sá um hönnun bygginga á svæðinu, þ.e. hönnunarstýringu, burðarvirki, raflagnir, hljóðvist, brunahönnun, lagnir og loftræsingu.

Aðkoma Íslendinga að verkefninu hefur verið með fjölbreyttum hætti eins og t.d. verkfræðiráðgjöf, byggingarvinna, jarðvinna, boranir og eftirlit. Aðrir samstarfsaðilar eru Per Aarsleff, Ístak,  Rambøll DK ásamt undirverktökum.

Stórskipahöfn í NuukAllt athafnasvæði hefur stækkað með tilkomu nýrrar hafnar. Ljósmynd: Christoffer Guldbrandsen Møller

Stórskipahöfn í NuukHluti af þeim nýju byggingum sem hafa risið við hafnarbakkann. Ljósmynd: Christoffer Guldbrandsen Møller

Stórskipahöfn í NuukNýtt og betrumbætt hafnarsvæði í Nuuk. Ljósmynd: Christoffer Guldbrandsen Møller